158. löggjafarþing — 13. fundur,  6. okt. 2026.

Evrópska efnahagssvæðið.

134. mál
[21:02]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég held að í þetta skipti sé full meining í þessu öllu, að þau ætli sér að klára þetta, það sé einhvers lags hefndaraðgerð gagnvart þeirri niðurstöðu sem varð í þjóðaratkvæðagreiðslu í lok ágúst. Málið er nú flutt í fjórða skipti. Fyrst var það flutt á 153. þingi, síðan 156., 157. og 158. Mig langar að nefna í því samhengi að á 157. þingi var þetta þriðja mál á eftir fjárlögum og bandormi. Það átti því aldeilis að keyra þetta í gegn. Nefndarálit meiri hluta utanríkismálanefndar var klárt 1. desember, ef ég man rétt. Það væri auðvitað við hæfi að nota fullveldisdaginn til þess en mig gæti misminnt dagsetninguna en það skeikar ekki miklu.

Það sem gerist síðan er það að í einhverjum svona sammenkomst — ég biðst forláts, virðulegur forseti — í einhverjum spjallhópi Evrópusinna komast þau að þeirri niðurstöðu, held ég, að ef þau klára bókun 35, sem þau hefðu svo sannarlega geta klárað í ljósi þess hvaða afl ríkisstjórnin er tilbúin að nota til að keyra umdeild illa unnin mál í gegn, þá held ég að þeim hefði verið í lófa lagið að klára málið á 157. þingi, sérstaklega í ljósi þess að á þeim tíma fullyrðir fulltrúi Íslands hjá ESA að hann hafi þá þegar upplýst ríkisstjórnarflokkana um að málshöfðun væri yfirvofandi yrði málið ekki klárað á því vorþingi. Samt er hætt við að klára það. Ég held að það sé af því að ríkisstjórnarflokkarnir komust að þeirri niðurstöðu í spjallhópi áhugamanna um að ganga inn í ESB að ef bókun 35 yrði kláruð á því vorþingi væri ekki möguleiki á að já-ið yrði ofan á í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem forystukonur ríkisstjórnarinnar höfðu á þeim tímapunkti ákveðið að færi fram, (Forseti hringir.) til að leiða þetta mál í jörðu. Ég held að í þetta skipti sé full meining á bak við þetta. Við náðumst ekki inn í ESB í lok ágúst þannig að það verður reynt (Forseti hringir.) að ná okkur aftur þar inn núna.