158. löggjafarþing — 13. fundur,  6. okt. 2026.

Evrópska efnahagssvæðið.

134. mál
[21:27]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Það hefur verið fróðlegt að fylgjast með þessari umræðu hér í dag. Ég verð þó að segja að þessi umræða er svolítið eins og framlenging sem engu getur breytt í töpuðum fótboltaleik. Mér hefur þótt ég greina mikinn pirring og biturð af hálfu stjórnarliða í umræðu um þetta mál. Ég ætla hins vegar að hrósa þeim örfáu þingmönnum stjórnarflokkanna sem þó hafa tekið þátt í þessari umræðu og þannig átt þátt í því að reyna aðeins að dýpka umræðuna um þetta mál og varpa ljósi á ýmsa fleti í þessu sem sumu fólki getur reynst torvelt að skilja. Ég vil því þakka þeim fyrir að hafa tekið þátt í þessari umræðu en furða mig að sama skapi á því að hér vantar marga þingmenn stjórnarflokkanna sem hafa látið sig utanríkismál varða og sérstaklega samskipti við Evrópusambandið. Það hefði verið gagnlegt að fá þá í þessa umræðu.

Í umræðunni í dag hefur stjórnarliðum orðið tíðrætt um skuldbindingar Íslands og látið að því liggja og fullyrt að Ísland hafi skuldbundið sig til að veita EES-reglum forgang hér með EES-samningnum. Þannig var það bara alls ekki. Það er bara ekki rétt vegna þess að stjórnarskráin leyfir ekki slíkan forgang. Þess vegna var ekki um það að ræða á sínum tíma að íslensk stjórnvöld hefðu skuldbundið Ísland með þeim hætti að veita þessum reglum forgang og það er þess vegna sem 3. gr. laganna um EES-samninginn er til komin. Hún fjallar um það að við eigum að túlka óljósar íslenskar reglur; ef svo óheppilega vill til að lagaákvæðið er óljóst þá ber okkur að túlka það í þágu EES-samstarfsins og um þetta hefur ekki verið deilt.

Mér hefur líka þótt bera á nokkrum misskilningi af hálfu stjórnarliða um gangverk EES-kerfisins, ef ég mætti orða það þannig. Það hefur borið á því að menn rugli saman annars vegar innleiðingu á EES-reglu og hins vegar túlkun á þeirri reglu. Það er vísað hér í þessi dómsmál og ég átti orðastað við hæstv. utanríkisráðherra um það sem ég hef nú kinnroðalaust haldið fram að hafi verið blekking af hennar hálfu, óafvitandi eða meðvitað. Kannski er það bara þannig að hæstv. utanríkisráðherra hefur ekki lagt sig fram um að lesa þá dóma sem hún er að fjalla um á opinberum vettvangi en málflutningurinn hefur verið til þess fallinn að blekkja almenning um eðli bókunar 35 og það finnst mér vont. Þau dómsmál sem hefur verið vísað til varða öll ranga innleiðingu á EES-reglum. Þau varða ranga innleiðingu á EES-reglum. Bókun 35 hefði engu breytt í því sambandi. Og það eru fleiri dómar sem hafa fallið og verið fjallað um í Hæstarétti þar sem reynt hefur á EES-réttinn sem hefur stangast á við innlendan íslenskan rétt, bæði skýran íslenskan rétt og óskýran íslenskan rétt. Um þetta hefur verið fjallað í nokkrum dómum Hæstaréttar en í engum þeirra dóma, að því er ég best veit, er hægt að fullyrða að ný 4. gr. — eins og lagt er til í frumvarpinu að bætist inn í lögin um EES-samninginn, sem sagt að við myndum innleiða þessa bókun 35 með nýrri 4. gr. — hefði tryggt réttindi aðila í þessum dómsmálum eða komið í veg fyrir málshöfðunina.

4. gr. hefði mögulega í fáeinum málum opnað fyrir efnislega EES-prófun, eins og það er kallað í lögfræðinni, í málaferlum sem þessum; efnislega EES-prófun sem dómstólar höfnuðu vegna rétthæðar en þessi 4. gr. hefði alls ekki getað tryggt sigur og alls ekki gert málshöfðun óþarfa. Deilur um rétta innleiðingu, skýrleika, gildissvið, ósamrýmanleika og réttlætingu ráðstafana hefðu eftir sem áður getað þurft að fara fyrir dómstóla. Það er nú mergurinn málsins í þessu máli (Forseti hringir.) og ég bið hv. utanríkismálanefnd að fjalla ítarlega um þessi lagatæknilegu atriði.