Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég vil í fyrra andsvari mínu ítreka það sem ég kom inn á í fundarstjórn áður en hæstv. ráðherra fór í ræðu sína þar sem ekki var ljóst hvort ég kæmist í andsvar. En nú er hæstv. ráðherra búin að upplýsa að henni hugnist ekki að það verði erlendur lögmaður fenginn til ráðgjafar í þessum efnum eða til að leiða í öllu falli. En í því samhengi vil ég svo sem minna á að Tim Ward leiddi lögfræðiteymi Íslands í Icesave-málinu en ég er mjög fylgjandi því að það sé litið til með öflugum íslenskum lögmönnum. En ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Hvernig sér ráðherra þetta fyrir sér í ljósi þess að nú þarf svar að berast ESA fyrir 30. nóvember? Er ráðherrann farinn að íhuga hvernig að þessu verður staðið, hvort hún kalli stjórnarandstöðu til skrafs og ráðagerða til að reyna að auka líkur á að traust verði um þá nálgun sem viðhöfð verður? Já, bara opin spurning: Hvernig sér hæstv. ráðherra fyrir sér að skipa það lögfræðiteymi sem nú blasir við að þörf er á að skipa í ljósi þess að það er útilokað að þetta mál verði komið í gegn fyrir 30. nóvember nema menn beiti 71. gr. þingskapalaga með ítrekuðum hætti — ja, það þarf svo sem ekki nema einu sinni en ég alla vega sé ekki fyrir mér að það sé raunhæft, svo það sé nú sagt.
Síðan ef ráðherra gefst tími til þá hef ég fylgst vel með umræðunni í dag, ég hugsa að ég hafi misst af sirka hálftíma; ef hæstv. ráðherra vildi útskýra hvað hún á við með því að þingmenn stjórnarandstöðu hafi verið að brigsla stjórnarliðum um stjórnarskrárbrot. Ég man ekki eftir því að hafa heyrt slíkt í dag. Í ljósi þess að þetta er býsna alvarleg ásökun sem hæstv. ráðherra setur fram þá finnst mér verða að fylgja með hvaða þingmenn hæstv. ráðherra er að hugsa um í þessu samhengi, því á meðan það liggur ekki fyrir liggjum við öll undir grun. Ég hef vissulega heyrt menn tala um að þetta sé allt saman umdeilt og óljóst en (Forseti hringir.) að brigsla stjórnarþingmönnum um stjórnarskrárbrot, ég hef ekki orðið var við það í allan dag.