Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Það er ágætt að það liggi fyrir að hæstv. ráðherra og vafalaust formaður utanríkismálanefndar sjá fyrir sér að afgreiða þetta mál hratt í gegnum nefndina miðað við þá tímalínu sem mér heyrist hæstv. ráðherra horfa til. Hæstv. ráðherra treystir sér greinilega ekki til að taka dýpra í árinni en svo að haft verði samráð við utanríkismálanefnd við skipun lögfræðiteymis Íslands í þessu máli. Ég ætla nú bara að gera aðra atlögu að þessu: Er það virkilega þannig að hæstv. ráðherra sjái ekki fyrir sér að skynsamlegt sé að byggja brú yfir til stjórnarandstöðu í þessu máli — því það liggur nú nokkuð skýr lína hér í þingsalnum um það hver afstaða flokka er, holt og bolt. Er það virkilega þannig að hæstv. ráðherra sjái fyrir sér að aðkoma þingsins verði samráð við utanríkismálanefnd, sem við höfum fengið lýsingar á að sé oft og tíðum með þeim hætti að það sé raunverulegt sýndarsamráð (Forseti hringir.) og í raun sé samráð eins og viðhaft var um leiguþakið hér í gær?