Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég vil vekja athygli á notkun tónlistar í pólitískum áróðri á samfélagsmiðlum og ábyrgð okkar gagnvart höfundum, flytjendum og neytendum. Í aðdraganda nýafstaðinnar þjóðaratkvæðagreiðslu mátti heyra tónlist notaða til að styðja pólitísk skilaboð. Var aflað tilskilinna leyfa, var rætt við höfunda og eigendur upptakna eða var gengið út frá því að tónlist á samfélagsmiðlum mætti nota að vild? Leiðbeiningar STEF gera greinarmun á réttinum að laginu og réttinum að upptökunni. Leyfi fyrir öðru jafngildir ekki leyfi fyrir hinu; að hægt sé að velja lag í snjallsíma staðfestir ekki að nota megi það í kostaðri auglýsingu. Þegar þekkt lag eða rödd flytjanda er tengd pólitískum málstað getur almenningur talið að listamaðurinn styðji þann málstað. Við eigum að virða það að fólk ráði sjálft hvort og hvernig það tengist pólitískri baráttu. Tónlist vekur tilfinningar, byggir upp stemningu og gefur skilaboðum aukinn kraft, þess vegna er hún notuð. Á bak við hana liggja vinna, sköpun og réttindi fólks. Virðing fyrir þeirri vinnu þarf líka að birtast í greiðslum. Margir í skapandi greinum eiga erfitt með að lifa af störfum sínum jafnvel þó að framlag þeirra til íslenskrar tungu og menningar sé mikið.
Virðulegi forseti. Ég hvet stjórnmálaflokka og þingmenn til að tryggja nauðsynleg leyfi áður en kynningarefni er birt. Flokkarnir ættu að móta sameiginlegar leiðbeiningar með STEF og fulltrúum flytjenda og útgefenda um leyfisöflun og greiðslur. Jafnframt skora ég á menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið að flýta innleiðingu DSM-tilskipunarinnar. Hún miðar m.a. að því að styrkja stöðu höfunda og flytjenda, tryggja sanngjarnt endurgjald og skýra ábyrgð efnisdeilingarveitna. Við sem setjum öðrum reglur eigum að ganga á undan með góðu fordæmi. Virðing fyrir íslenskri menningu verður að sjást í því hvernig við komum fram við fólkið sem skapar hana. — Takk.