Störf þingsins.
Frú forseti. Sem þingmaður Norðausturkjördæmis og fyrrum bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð þekki ég vel umræðuna um Drekasvæðið og þau tækifæri sem þar kunna að vera, enda er þetta ekki ný umræða og ágætt að rifja upp að norsk og kínversk olíufélög skiluðu inn leyfum sínum á Drekasvæðinu árið 2018. Þau töldu að of litlar líkur væru á að arðbærar olíulindir fyndust til að hægt væri að réttlæta áframhaldandi leit. Sjálfsagt er að skoða af alvöru öll spennandi tækifæri, ekki síst með atvinnuuppbyggingu, orkuöryggi, þjóðaröryggi og náttúruvernd í huga en einmitt þess vegna skiptir máli að vanda til verka. Hér í þingsal kallar stjórnarandstaðan iðulega eftir gögnum, greiningum og skýrslum. Aldrei virðist nóg greint. En þegar kemur að Drekasvæðinu virðast allt í einu aðrar reglur gilda. Það hefur verið talað um ævintýralegan ávinning, tugi milljóna í mögulegar skatttekjur á hvern Íslending og málið gert að stórpólitísku kappsmáli. Í Evrópuumræðu sumarsins heyrðist sú röksemd að við ættum ekki að fara að deila olíugróðanum sem væri handan við hornið með ríkjum á meginlandi Evrópu. Kannski hefði bara verið ágætt að bíða aðeins því nú liggur fyrir ítarleg greinargerð Umhverfis- og orkustofnunar á þeim rannsóknum sem þegar hafa farið fram. Niðurstaðan er skýr: Hverfandi líkur eru taldar á kolvetni í vinnanlegu magni og stofnunin telur ekki forsendur miðað við núverandi þekkingu til að auglýsa eftir umsóknum um ný sérleyfi. Það útilokar ekki frekari rannsóknir eða umræðu um möguleika svæðisins en það sýnir hvers vegna hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur lagt áherslu á að umræðan byggist á gögnum og staðreyndum.
Við eigum að skoða tækifærin en við eigum líka að fara rétt að, því eins og sagt er: Ekki er allt gull sem glóir.