158. löggjafarþing — 14. fundur,  7. okt. 2026.

Störf þingsins.

[13:37]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (U):

Virðulegur forseti. Eftir ábendingar verð ég að biðjast afsökunar á því að taka ekki tillit til landsbyggðarinnar í ræðu minni í gær. Auðvitað þarf að sjá til þess að þjónusta TR sé einnig í lagi þar. Almannatryggingakerfið er orðið 90 ára, ansi þreytt, stagbætt og bútasaumað. Þá eru keðjuverkandi skerðingar á lífeyrislaunum allt of miklar og því miður, eins og kom fram í ræðu minni í gær, ná þær oft út yfir dauða og gröf. Nú er kominn tími á að þetta 90 ára gamla kerfi fái varanlega hvíld og að tekið verði upp nýtt og sanngjarnt mannúðlegt kerfi sem allir skilja, kerfi þar sem aldraðir og öryrkjar verða ekki fyrir afturvirkum skerðingum sem ná ekki bara yfir í félagslega kerfið heldur einnig eftir andlát. Við erum með kerfi þar sem árlega 60.000 einstaklingar af 85.000 einstaklingum fá rangt greitt. Þetta er ekki í lagi og við verðum að breyta þessu. En hvað með þá sem standa verst fjárhagslega í almannatryggingakerfinu í dag? Stefna okkar á að vera að vernda þá og sjá til þess að hækkanir á nauðsynjum verði ekki til þess að viðkomandi neiti sér um lífsnauðsynlega þjónustu vegna efnahags. Komugjöld vegna heilbrigðisþjónustu hafa hækkað og nýjum komugjöldum í sjúkraþjálfun hefur verið komið á. 12.000 kr. á mánuði fyrir hjón á lífeyrislaunum vegna sjúkraþjálfunar sem þau þurfa nauðsynlega og það ofan á annan kostnað er allt of mikið. Með þessu stefnum við því miður þeim verst settu í það að þurfa að neita sér um þessa þjónustu. Afleiðingarnar verða þær að viðkomandi endar á sjúkrastofnun sem er versti kosturinn og, það segir sjálft, sá langdýrasti.