Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í nýliðinni kjördæmaviku vorum við þingmenn á ferð og flugi um kjördæmin. Við þingmenn Suðurkjördæmis heimsóttum m.a. Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Þar fengum við ítarlega kynningu á starfseminni og góða innsýn í það mikilvæga starf sem þar fer fram á hverjum degi, oft við mjög krefjandi aðstæður. Þegar horft er til Heilbrigðisstofnunar Suðurlands vekur sérstaða hennar athygli en hún einkennist af mikilli nýsköpun og lausnamiðaðri nálgun. Má þar nefna farsæla uppbyggingu heimaspítala sem gerir sjúklingum kleift að fá sérhæfðari þjónustu heima í stofu. Einnig má nefna verkefnið Kraftmiklir krakkar en það verkefni sýnir einmitt hvernig sérfræðingar leysa flókin verkefni með lausnamiðaðri nálgun. Ef við horfum til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja hefur sú stofnun einnig sína sérstöðu. Þar hefur bráðamóttakan m.a. fengið gæðastimpilinn viðurkenndur kennslustaður sem er mjög þýðingarmikið fyrir starfið sem þar er unnið. Það er ekki síst ánægjulegt að sjá að nýjustu mælingar sýna að HSS, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, er til fyrirmyndar í öllum þjónustuþáttum og var hástökkvari meðal ríkisstofnana. Það er árangur sem starfsfólkið getur svo sannarlega verið stolt af. Einnig má til gamans geta að heilbrigðisstofnunin þar þjónustar um 30.000 manns sem er svipað og Sjúkrahúsið á Akureyri.
Rauði þráðurinn í þessum heimsóknum var mjög skýr. Við þurfum að fylgjast vel með íbúaþróun og tryggja að fjármögnunin fylgi ört vaxandi samfélagi og aukinni þjónustuþörf, bæði meðal íbúa og ferðamanna. Íbúum fjölgar hratt bæði á Suðurlandi og Suðurnesjum og þjónustan þarf að fylgja og vaxa í takt við það. Þess vegna er afar ánægjulegt að sjá að fjármagn hefur verið tryggt í að byggja viðbyggingu við Heilbrigðisstofnun Suðurlands og að bæta enn frekar aðstöðu á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, m.a. með viðbótum við móttöku sjúkrabíla og fleira. Þótt þessar framkvæmdir skipti miklu máli fyrir Suðurkjördæmi allt þá megum við ekki láta staðar numið. Góð heilbrigðisþjónusta í heimabyggð er grundvallarþáttur í lífsgæðum fólks og öryggi þess og að blómlegar byggðir haldi áfram að vaxa.