Störf þingsins.
Frú forseti. Í síðustu viku fórum við þingmenn Suðvesturkjördæmis um kjördæmið í kjördæmaviku. Bæjarfulltrúar og þingmenn fengu svo síðastliðinn föstudag kynningu á skýrslu sem Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu létu gera um samspil og virkni í velferðarþjónustu. Niðurstaða skýrslunnar er skýr: Rauði þráðurinn í samskiptum ríkis og sveitarfélaga er að ríkið setur lög sem sveitarfélögin ætla að framkvæma en í heimi takmarkaðra gæða er fjármagnið ekki alltaf nægt og þá er farið að forgangsraða og takmarka þjónustu. Þetta veldur núningi milli ríkis og sveitarfélaga. Þetta er gráa svæðið í samskiptum þeirra. Þetta er kerfislægur vandi.
Frú forseti. Þjónustan við aldraða er bæði á hendi ríkis og sveitarfélaga. Ríkið sér um heimahjúkrun og sveitarfélag um stuðningsþjónustu. Sama fólkið fær heimaþjónustu, bæði frá ríki og sveitarfélögum. Fyrir nokkrum árum var sett af stað verkefnið Gott að eldast þar sem þessi þjónusta var sett á eina hendi. Skilyrði fyrir þátttöku er að heilbrigðisstofnun sem rekur heimahjúkrun og sveitarfélag sem rekur stuðningsþjónustuna séu sammála um að einn aðili reki samþætta þjónustu eða að þau feli í sameiningu þriðja aðila rekstur þjónustunnar. Þetta verkefni gengur vel, það sem ég hef séð, og sýnir að það er hægt að leysa úr ágreiningi ríkis og sveitarfélaga þegar aðilar átta sig á því að það ber að nálgast verkefnið út frá hagsmunum íbúa þar sem samstarfið er formlegt með skýrri ábyrgð og pólitískri sýn. Næsta skref verður að láta sama fyrirkomulag ná til aldraðs fatlaðs fólks en þar liggur stærsta gráa svæðið samkvæmt þessari skýrslu.
Ég hvet okkur öll, ríkisstjórn, Alþingi og sveitarfélög, til að byggja á þessari reynslu og taka næsta skref saman með hagsmuni íbúa að leiðarljósi.