158. löggjafarþing — 14. fundur,  7. okt. 2026.

Störf þingsins.

[13:44]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Frú forseti. Í gærkvöldi lauk 1. umræðu um frumvarp hæstv. utanríkisráðherra Viðreisnar um breytta innleiðingu á bókun 35. Það var tekist á í umræðunni, eðlilega, og fór hæstv. utanríkisráðherra mikinn en hefði mátt dylgja minna um þá sem athugasemdir hafa við málið og eru því jafnvel andvígir. Þessu máli er hent inn í þing í fjórða sinn í skugga ákvörðunar ESA um að höfða samningsbrotamál gegn Íslandi.

Af þessu tilefni langar mig að vekja athygli á áhugaverðum pistli Hjartar Guðmundssonar, sem skrifaði fyrr í þessum mánuði á síðu sinni, með leyfi forseta:

„Fimm lögfræðingar sem starfa hjá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) skipa lögfræðingateymi stofnunarinnar gegn Íslandi í málsókn hennar fyrir EFTA-dómstólnum vegna bókunar 35 við EES-samninginn. Þar af tveir íslenzkir. Þær Sigrún Ingibjörg Gísladóttir og Hildur Hjörvar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu dómstólsins um málið.

Fróðlegt er að skoða bakgrunn þeirra Sigrúnar og Hildar.“ — Forseti. Ég er enn að vitna til skrifa Hjartar Guðmundssonar. — „Sigrún er þannig til að mynda fyrrverandi varaþingmaður Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi, kjördæmi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns flokksins. Hildur Hjörvar er fyrrverandi formaður Hallveigar, ungs jafnaðarfólks í Reykjavík, og var á sínum tíma frambjóðandi fyrir Samfylkinguna. Þá má geta þess að hún er dóttir Helga Hjörvars, fyrrverandi þingflokksformanns flokksins.

Tekin var, sem kunnugt er, ákvörðun um málsóknina á miðvikudagsmorguninn af þremur stjórnarmönnum ESA en einn þeirra er Árni Páll Árnason, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar. Hefur aðkoma hans að málinu vakið talsverða athygli vegna bakgrunns hans í hérlendum stjórnmálum og verið tilefni talsverðrar fjölmiðlaumfjöllunar. Hins vegar er hann, sem fyrr segir, ekki sá eini sem kemur að málsókninni og hefur tengsl við núverandi stjórnarflokka.“

Af þessu tilefni er þess vegna alveg augljóst mál að einhver hafa samskiptin verið á milli utanríkisráðuneytisins, utanríkisráðherra, ESA og embættismanna í Brussel frá því að núverandi ríkisstjórn tekur við keflinu varðandi þessi yfirvofandi málaferli eða hótun um málaferli sem nú eru orðinn hlutur. Jafnvel hafa samskiptin verið töluverð. Það er þess vegna nauðsynlegt að utanríkisráðherra hlutist til um að utanríkisráðuneytið birti fyrir þingi og þjóð afrit og útskrift af öllum þeim samskiptum sem þarna hafa farið á milli.