Störf þingsins.
Frú forseti. Fyrir nokkru síðan lagði ég ásamt nokkrum þingmönnum úr þremur flokkum fram tillögu til þingsályktunar um eyðingu minks úr íslenskri náttúru. Tillagan gerir ráð fyrir að hæstv. umhverfisráðherra verði falið í samráði við sveitarfélög og aðra hagaðila að móta stefnu og aðgerðaáætlun með það að markmiði að eyða þessum skaðvaldi úr íslenskri náttúru. Þannig er gert ráð fyrir að gerð verði áætlun um verkið að bestu manna yfirsýn, hverjir kæmu að verkefninu, hvernig yfirstjórn þess yrði, hversu mikið fjármagn þyrfti, hversu langan tíma verkefnið myndi ná yfir og einnig hvernig eftirfylgni yrði háttað.
Frú forseti. Eftir að hafa rætt við fjölmarga aðila sem hafa áhuga á málinu þá telja þeir sem gerst þekkja raunhæft að slík aðgerð væri vel gerleg að því tilskildu að undirbúningur væri góður, víðtæk samvinna næðist, átakið færi samtímis af stað á öllu landinu og því yrði fylgt eftir allt til loka — því yrði fylgt eftir allt til loka. Nú eru rúmlega 90 ár frá því að minkur tók sér bólfestu í íslenskri náttúru. Minkurinn telst framandi tegund og ágeng hér á landi og hefur haft verulega neikvæð áhrif á íslenskt lífríki. Skaðsemi hans felst m.a. í afráni á fuglum, eggjum og ungum og jafnframt hefur hann mikil áhrif á fiskstofna í ferskvatni, sérstaklega hefur verið bent á áhrif minks á fuglategundir sem verpa við vatn og á strandsvæðum. Þá hafa verið færð rök fyrir því að minkurinn kunni að hafa átt þátt í útdauða keldusvíns sem varpfugls á Íslandi og fækkun flórgoða auk þess sem hann hefur mikil áhrif á stofnstærð teistu.
Frú forseti. Ekki er hægt að fullyrða hversu stór minkastofninn hér á landi er en menn hafa nefnt tölur eins og 13.000 dýr. Minkaveiðar hafa verið stundaðar hér á landi um langt skeið í því skyni að halda stofni minksins í skefjum en með misjöfnum árangri. Ýmis tilraunaverkefni hafa farið fram sem benda til þess að umfangsmeiri og betri skipulagðar aðgerðir geti skilað enn meiri árangri. Við höfum dæmi frá ytri Suðureyjum við Skotland. Þar tókst að útrýma mink en eyjarnar eru 3.000 km² að stærð, hafa 2.500 km strandlengju og 7.500 vörp. (Forseti hringir.) Þar tókst að útrýma mink.
Frú forseti. Óþarft er að taka fram hversu mikill ávinningurinn yrði ef verkefnið tækist fyrir fuglalíf, fyrir æðarbændur fyrir alifuglabændur, (Forseti hringir.) fyrir stangveiðifélög og fyrir fjölmarga aðra aðila sem verða fyrir óæskilegum áhrifum af minknum.
(Forseti (ÞSv): Forseti minnir vinsamlegast á að ræðutíminn í störfunum er tvær mínútur.)