158. löggjafarþing — 14. fundur,  7. okt. 2026.

Störf þingsins.

[13:51]
Horfa

Viktor Pétur Finnsson (S):

Virðulegi forseti. Mig langar að nýta tækifærið til að hrósa spunameisturum ríkisstjórnarinnar. Mig langar að hrósa þeim fyrir hvað þeir hafa staðið sig vel í að stýra umræðunni og afvegaleiða hana frá öllum sannleika. Hér fyrir kosningar var sagt: Við ætlum ekki að hækka skatta á venjulegt fólk. Já, á venjulegt fólk. Svo horfi ég yfir þetta nýja fjárlagafrumvarp og það eina sem ég sé eru skattahækkanir á einmitt venjulegt fólk. Kílómetragjaldið er hækkað um 16% sem lendir bara á venjulegu fólki. Tekjuskattur á einstaklinga er hækkaður. Hækkun krónutölugjalda ríkisins — venjulegt fólk. Bankaskattur er hækkaður sem mun leiða til hækkana hjá viðskiptavinum bankanna — venjulegt fólk. Ég spyr: Eru þetta loforð efnd? Stýrivextir sem voru á niðurleið hafa hækkað í tíð þessarar ríkisstjórnar; það eru hækkaðar afborganir í hverjum einasta mánuði fyrir venjulegar fjölskyldur. Verðbólgan er sú hæsta í tvö ár og étur upp laun launafólks. Þetta eru hærri skattar í hverjum einasta mánuði, ekki á auðmenn eða fjármagnseigendur heldur á venjulegar fjölskyldur. Öllu illu er svo klínt á fyrrverandi ríkisstjórn en samt eru skuldir ríkisins hærri nú en þegar síðasta ríkisstjórn hætti. Nú er ekki Covid, nú eru ekki eldsumbrot á Reykjanesskaga. Halli ríkissjóðs er 66 milljarðar og það eina sem hefur verið gert er að teikna eitthvert núll á blað sem ég á eftir að sjá gerast. Svo hreykir núverandi ríkisstjórn sér af afrekum síðustu ríkisstjórnar þegar hentar, eins og að telja fólki trú um að hægt sé að byggja 200 hjúkrunarrými á tveimur árum. Svo forðast þau fjölmiðla sem eru ekki þeim hliðhollir, tala niður stjórnarandstöðuna, Sjálfstæðisflokkinn, og tönnlast á því að allt sé á réttri leið. Fjölskyldur landsins borga meira og spunameistararnir á yfirsnúningi.

Ég spyr: Eru þetta loforð efnd? (Gripið fram í: Heyr, heyr. )