Störf þingsins.
Frú forseti. Eftir 20 ára starf í fjölmiðlun á fimm fjölmiðlum er maður eðlilega svolítið tilfinningalega tengdur þeim vettvangi og þá sér í lagi fréttastofunum sem ég vann á hvað mörgum. Ég á því svolítið erfitt með að sætta mig við þann raunveruleika sem blasir við manni kl. 18:30 núna á hverju kvöldi þegar maður fær ekki sjónvarpsfréttir Sýnar. Viðvörunarljósin eru búin að blikka lengi, það er alveg klárt mál, en eiginlega aldrei meira en síðustu 18 mánuði eða svo. Hæstv. ráðherra þessa málaflokks sagði í fyrra að hann bara hreinlega trúði ekki að þetta myndi gerast, þ.e. að Sýn myndi fara undir. Svo eftir að við afgreiddum hér enn eina hengingarólina til íslenskra fjölmiðla í vor, liðu 80 dagar þar til Sýn fór undir. Ég hef verið gagnrýninn á áform ráðherra í þessum efnum og það er mitt mat með mína reynslu að skilningurinn þarna á stöðu fjölmiðla og framtíð þeirra sé nánast enginn. Vísir dró út svar frá ráðuneytinu nú í vikunni um hluta áformanna sem eru lögð til í nýju frumvarpi, sér í lagi um þetta 2,8 milljarða tekjuþak Ríkisútvarpsins sem er hluti af svona hraðbankaáformum hæstv. ráðherra. Áformin fela í sér að króna á móti krónu yfir þetta þak renni til annarra fjölmiðla. Gallinn er sá að samkvæmt samanburði Vísis á svörum ráðuneytisins hafa tekjurnar aðeins einu sinni farið yfir þetta mark fyrir utan eitthvert bix með uppreiknaðar verðbólgutölur. Þetta er því í raun gerviþak því að miðað við svörin og tölurnar breytist afar lítið ef nokkuð þegar kemur að ryksugun RÚV á íslenskum auglýsingamarkaði. Þetta er í grunninn 250–280 millj. kr. viðbótarstuðningur við einkarekna fjölmiðla og það hljómar alveg góðra gjalda vert, ég átta mig á því. En í mínum huga með mína reynslu kristallast þarna klárt skilningsleysi ráðherra og ráðuneytisins á fjölmiðlum. Ég velkist ekki í vafa um að svona stuðningur muni virka vel og virka eins og bjargráð fyrir minni fjölmiðla. En hvernig á þetta að glæða íslenska fjölmiðlun lífi á einhverju stærra spektrúmi? Það er bara ekki að fara að gerast. Við munum aldrei með þessi áform fá annan sjónvarpsfréttatíma, aldrei aftur annan stóran fjölmiðil og það er ekki gott. (Forseti hringir.) Það getur vel verið að þarna sé góður hugur að baki en þetta er í rauninni ekkert annað en sýndarmennska sem aftur lýsir að mínu mati ákveðinni skilningsgjá á milli ráðuneytis fjölmiðla og íslenskra fjölmiðla.