Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að vitna til orða sveitarstjóra Mýrdalshrepps varðandi ógnina af sjávarflóðum, með leyfi forseta:
Ef ekki verður brugðist við mun þjóðvegurinn að endingu fara í sundur.
Virðulegi forseti. Mýrdalshreppur er ekki einn í þessari stöðu. Suðurnesjabær hefur þegar gefið út að náttúruvá sjávarflóða sé ein sú helsta sem steðjar að bænum og bærinn hefur þegar upplifað neyðarástand sem snýr að þessum þætti. Einnig má nefna Akranes en þar urðu miklar skemmdir í mars 2025 sem varða þessa náttúruvá. Við gætum haldið áfram út á Granda, til Akureyrar. Staðan er einfaldlega sú að sjávarflóð eru algengur nýr veruleiki vegna landrofs, vegna loftslagsbreytinga og annarra umhverfisþátta sem við verðum að taka betur á. Hættan er okkur morgunljós en samt er eins og kerfin okkar nái ekki utan um þessa hættu. Það er eins og hún falli milli skips og bryggju, falli á milli þess að við séum að taka þetta inn í neyðaraðgerðir eða langtímaaðgerðir. Viðbrögðin við ógninni þurfa hins vegar að komast í fastan farveg og mig langar að taka dæmi um áhættuna út frá þjóðveginum sem liggur í gegnum Vík. Þjóðvegurinn í gegnum Vík í Mýrdal er ekki bara lífæð fyrir öll samfélögin sem eru fyrir austan Vík, hann er líka lífæð fyrir atvinnulíf. Við erum að tala um verðmæti sjávarútvegs, landbúnaðar og fleiri atvinnugreina eins og ferðaþjónustunnar sem treysta á þennan þjóðveg. Ef upp kemur sú staða að þjóðvegurinn rofnar mun það hafa mikil áhrif á verðmætasköpun á svæðinu og það er til mikils að vinna að við séum að fjárfesta hér. Samt er það þannig, virðulegi forseti, að fjárframlög lækka til sjóvarna, samkvæmt nýrri samgönguáætlun, úr 181 millj. kr. í 144 millj. kr. árið 2030. (Forseti hringir.) Þetta er ekki viðunandi ástand. Almannavarnir eru að fókusera á þætti eins og skriðuföll og (Forseti hringir.) ofanflóðavarnir. Við þurfum líka að bregðast við hér.
(Forseti (ÞSv): Þá er óhætt að minna þingmenn aftur á að ræðutíminn í störfunum er tvær mínútur.)