158. löggjafarþing — 14. fundur,  7. okt. 2026.

kortlagning á velferðarumhverfi barna og fjölskyldna þeirra.

153. mál
[14:08]
Horfa

Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Markmiðið með þessari skýrslubeiðni er að fá fram ítarlega heildarkortlagningu á velferðarumhverfi barna og fjölskyldna, nokkuð sem ríkisendurskoðandi benti á að hefði þurft að eiga sér stað áður en farsældarlögin voru innleidd hérna fyrir fimm árum síðan. Það er nefnilega þannig að til þess að samþætta þjónustu og gera hana aðgengilega hratt og vel þarf hún að vera til staðar og aðgengið þarf að vera greitt. Ég tel að þessi kortlagning sé gott tæki til þess að við hér getum fengið að sjá nákvæmlega hvar götin í kerfinu okkar eru. Hvað er vel gert? Hvar þarf að bæta í? Hvar liggja mörkin milli sveitarfélags og ríkis? Og annað sem býr til heildarsýn, sem ég held að sé mjög mikilvægt í þessum málaflokki. Ég óska eftir stuðningi.