kortlagning á velferðarumhverfi barna og fjölskyldna þeirra.
Virðulegur forseti. Ég ætla að fá að þakka hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur fyrir þessa skýrslubeiðni og þeim sem flytja hana með henni. Ég held að það sé mikilvægt að við fáum þessa kortlagningu. Þetta er ofboðslega mikilvægt mál sem ég veit að brennur á þingheimi öllum. Ég styð þar af leiðandi þessa skýrslubeiðni. En ég vil líka nota tækifærið til að hvetja okkur sem hér erum inni til að finna leiðir til að tryggja það að lögin um farsæld barna og markmiðið sem að var stefnt þar, sem ég held að hafi verið mikil sátt um, nái fram að ganga. Ég nefni þetta sérstaklega hér vegna þess að ég veit að við þingmenn höfum örugglega öll fengið umræðu um þetta í kjördæmavikunni, það sem brennur á sveitarfélögunum núna varðandi það fjármagn sem verið er að taka frá sveitarfélögunum og færa yfir í aðra þjónustuþætti er tengjast farsæld barna án samtals við þau. Við verðum að finna lendingu í þessu máli. Það er ekki hægt að koma með svona mikilvæg og brýn mál og tryggja ekki að bæði þingið, framkvæmdarvaldið og sveitarfélögin vinni saman að þeim.