húsaleigulög.
Frú forseti. Manni eru eiginlega farnar að fallast hendur. Laga Ísland, sagði hæstv. forsætisráðherra. Ég vona að hún hafi fyrst og fremst verið að meina að laga það þegar kemur að efnahagslegum málum en mér sýnist öll skref sem eru tekin vera í þá átt að skemma frekar fyrir. Hæstv. forsætisráðherra sagðist líka fyllast auðmýkt alla daga af því að vinna með hæstv. ráðherra, Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins. Er auðmýktin slík að henni er farin að blindast sýn þannig að, eins og ég nefndi hér áðan, hagfræði Flokks fólksins sé farin að ráða för? Það lítur alla vega út fyrir það.
Það frumvarp sem við ræðum hér er eins og önnur frumvörp þessarar ríkisstjórnar. Tilgangurinn er sagður einn, markmiðin eru yfirleitt góð en innihaldið er alltaf eitthvað allt annað. Það er vandamálið. Og hvað gerist með þessari leigubremsu? Sennilega gerist lítið til að byrja með. Af hverju gerist lítið? Vegna þess að þessi ríkisstjórn er búin að koma efnahagsmálunum á þann stað að fasteignamarkaðurinn er í frosti og leigumarkaðurinn er líka í frosti þannig að áhrifin af þessu frumvarpi þess efnis að leiga muni hækka munu ekki verða ljós strax af því að aðstæður til hækkunar á leigumarkaði eru ekki til staðar.
Sumir gætu sagt: Eigum við ekki bara að leyfa þessari ríkisstjórn að gera þessar gloríur þannig að við losnum fyrr við hana? Ég hef fengið að heyra þetta oft en þetta er erfið tilhugsun því að við sem erum hér erum augljóslega kosin til að vinna fyrir fólkið í landinu og við vitum að þetta frumvarp er vont frumvarp. Gott og vel, það gerist kannski ekki neitt slæmt alveg strax. En þegar kemur að því, hvar verður þessi ríkisstjórn þá? Ætlar hún að taka á móti fólkinu sem missir húsnæðið þegar flestir leigusalar verða komnir með nóg og geta selt eignina sína þegar markaðurinn losnar úr frosti og eignirnar fara á sölu af því að það nennir enginn að standa í að leigja lengur? Ætlar þessi ríkisstjórn að taka við fólkinu þá? Vonandi verður þessi ríkisstjórn farin frá völdum en trúið mér, það er búið að reyna þetta víða um heim.
Hvað gerðist til að mynda nýverið á Spáni? Leiguíbúðum fækkaði. Alls staðar þar sem þetta hefur verið reynt með þessum hætti er niðurstaðan sú sama: Þetta virkar ekki. En það sem virkar, ef það væri tilgangurinn, sem er ekki, er það að leiguverð hækkar, þ.e. ef leigusali má ekki hækka, tengja við vísitölu eða tengja við neitt í 12 mánuði, hvað gerist? Auðvitað reyna allir að hækka sem mest, að byrjunarleigan verði sem hæst, þannig að um leið og frostið fer af markaðnum þá mun húsaleiga hækka. Þetta mun ekki lækka húsaleigu. Húsaleiga mun hækka, eignum mun fækka og á hverjum bitnar það verst? Jú, auðvitað leigjendum, sem þetta frumvarp á að hjálpa. Ef þetta frumvarp hefði farið í samráðsgátt þá hefði mögulega verið hlustað á athugasemdir sem þar koma og það hefði verið hægt að laga frumvarpið áður en við værum með það hérna í 1. umræðu. En það var ekki gert. Af hverju var það ekki gert? Jú, það var sagt að frumvarpið væri þess eðlis að það gæti haft áhrif á markaðinn ef þetta færi í samráðsgátt. Frumvarpið á ekki að taka gildi fyrr en 1. júlí 2027. Hvaða endemis bull er þetta, frú forseti?
Þess má líka geta að þetta er sennilega eitt af fáum frumvörpum þar sem er einhver fyrirsjáanleiki. Við munum það hérna í fyrra, kílómetragjaldið var leitt í lög með innan við viku fyrirvara, það voru fimm og hálfur virkur dagur þar til það átti að taka gildi. Enginn fyrirsjáanleiki, ekki í nokkru einasta frumvarpi frá þessari ríkisstjórn en núna er fyrirsjáanleiki. En, frú forseti, þessi ríkisstjórn verður kannski bara að fá að renna á rassinn með suma hluti og ný ríkisstjórn þá að vinda ofan af hlutunum en það væri betra að gera þetta vel frá upphafi.
Staðan er sú að við erum með tvo hagfræðinga í ríkisstjórninni, þannig að maður var bjartsýnn þegar þessi ríkisstjórn varð til um að hér yrði tekið til í ríkisrekstrinum og efnahagsmálunum yrði komið í betra horf. Það hefur allt farið í þveröfuga átt. En hvar eru þessir hagfræðingar núna, hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, kennari við háskólann, kennir hagfræði, og hæstv. forsætisráðherra? Hvar eru þessir hagfræðingar? Þeir eru ekki að taka þátt í umræðunni. Er límið í stólunum svo sterkt að þeir láta allt yfir sig ganga bara svo Flokkur fólksins hlaupi ekki undan? Er límið í alvöru svona sterkt? Verðbólgan er búin að fara upp. Við vitum hvað það þýðir: Vextir upp. Allt sem þessi ríkisstjórn hefur gert, meira og minna allt, til að ná niður vöxtum og verðbólgu hafa verið aðgerðir sem hefur verið varað við áður en þær urðu að lögum. Það eru aðgerðir sem eru til þess fallnar að fara í öfuga átt við tilgang og markmið frumvarpanna.
Tökum sem dæmi krónutöluhækkanir í fyrra. Það var það sem skaut verðbólgunni af stað. 3,7%. 1,2% hækkun umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. Hvað gerir ríkisstjórnin? Lærir hún af reynslunni? Nei, hún bætir í og vonast eftir annarri niðurstöðu. Hún bætir í. Nú fer hún í 5,2%, frú forseti, langt umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans, meira, það dugar ekki til. Það dugar hins vegar ekki til að hækka kílómetragjöldin bara um 5,2%, þá þarf að hækka um 16%.
Svo eru fulltrúar ríkisstjórnarinnar svo óforskammaðir að í sömu andrá þá segja þeir: Við treystum því að fyrirtæki hér á landi hækki ekki sínar vörur. Þetta er auðvitað með ólíkindum, að ætlast til þess að fyrirtæki eigi ekki að hækka en ríkið ætlar ekki að ganga á undan með góðu fordæmi. Og hvað gerðist? Fyrirtækin í landinu, heimilin, allir voru tilbúnir að taka höndum saman og reyna að ná tökum á verðbólgunni og ákváðu að reyna að hækka ekki umfram verðbólgumarkmið. Þetta lítur auðvitað ekki vel út fyrir ríkisstjórnina þannig að hvað gera fulltrúar ríkisstjórnarinnar? Þeir koma með einhverja eftiráskýringu, að þeir ákváðu að fara einhverja leið sem var ekki sú að leiða heldur að pína fólk til að hækka ekki sín gjöld og segja: Þetta var bara plat hjá okkur að hækka um 5,2%, við vorum bara að bíða eftir að þið gerðuð þetta. Þetta er versta samningatækni sem nokkur maður hefur séð. Auðvitað voru líkurnar á því ef ríkisstjórnin myndi leiða að aðrir myndu fylgja á eftir. Ég segi bara: Stórt hrós á einkafyrirtæki í þessu landi að hafa ákveðið að hækka ekki umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans þrátt fyrir aðgerðir ríkisstjórnarinnar um það að hækka langt umfram verðbólgumarkmiðin. En það sem við vitum ekki í þessu leikriti, sem var auðvitað bara eftiráskýring, hvernig ætlar ríkisstjórnin að borga fyrir mismuninn? Því þau ætla að skila hallalausum fjárlögum. Það var ekki gert ráð fyrir því. Það var gert ráð fyrir 5,2% krónutöluhækkunum og hvað ætla þau að gera? Jú, mér heyrist að það eigi að ná því frá Landsvirkjun. Nú erum við bara að horfa fram á nýtt orkuveitumál hv. þm. Dags B. Eggertssonar, þar sem á að blóðmjólka Landsvirkjun í staðinn fyrir Orkuveituna í þetta skiptið. Okkur var hins vegar sagt að það skipti ekki máli þó að þetta mál hefði ekki farið í samráðsgátt, það væri svo mikil samstaða um málið. Já, það er nú meiri samstaðan um þetta mál. Við sáum það t.d. í morgun þegar seðlabankastjóri sagði, með leyfi forseta, orðrétt:
„Hvað varðar leigubremsu þá er þetta eitthvað sem er kennt í öllum grunnkúrsum í hagfræði og allir hagfræðingar ættu að vita að það er engin lausn að setja verðþak á leigu. Það leiðir til lengri tíma til þess að framboð á leiguhúsnæði minnkar og alls konar aðrir hlutir gerast.
Þetta eru algjörlega röng viðbrögð sem koma leigjendum verst. Ég er ekki viss um að það hafi endilega svo mikil áhrif á verðbólgumarkmið eða verðbólguna til skemmri tíma litið. Þannig að leigubremsan er augljóslega mjög heimskuleg en ég held hún hafi engin sérstök áhrif til skemmri tíma.“
Þetta er alveg rétt. Fólk getur svo haft skoðanir á því hvort hann hafi tekið stórt til orða en hér var látið áðan eins og þetta væri bara seðlabankastjóri. Nei, nei, ég er enn þá að reyna að finna fólkið sem er svona ánægt með þetta utan ríkisstjórnarinnar. Húseigendafélagið segist óttast að þetta frumvarp geti haft þveröfug áhrif við það sem stefnt er að og leitt til hærra leiguverðs, frú forseti, ekki lægra. Þetta er nefnilega alltaf það sama hjá ríkisstjórninni. Þetta er bara einhver umbúðamennska þar sem tilgangur og markmið er ofsalega fínt en innihaldið er svo eitthvað allt annað.
Það er líka búið að reyna þetta oft áður, að krukka í markaðnum með þessum hætti, handstýra honum en ætlast til þess að það verði engin hegðunarbreyting hjá neytendum, hjá fólkinu. Hvað gerist? Nú skulum við átta okkur á því að sirka 60% þeirra sem leigja út húsnæði eru einstaklingar sem eiga kannski allt sitt sparifé undir í þessari aukaeign og mögulega er hún skuldsett. Mögulega er eigið fé helmingur þegar vaxtaástandið er eins og þessi ríkisstjórn býður upp á. Er þá ekki meira spennandi hreinlega að selja eignina, setja peninginn inn á banka og fá góða ávöxtun? Fasteignaverð hefur staðið hér í stað í nokkurn tíma núna. Þú getur varla kannski borgað af lánunum, þú þarft kannski að borga með eigninni. Þá kemur ríkisstjórnin og setur verðþak og bannar þér að hækka. Ég ætla að leyfa mér að efast um það að flestir leigusalar séu að græða mjög mikið á útleigu í dag.
Frú forseti. Tíminn er á þrotum. Þetta mun stækka báknið. Þetta mun hækka verð fyrir leigjendur. Þetta mun fækka íbúðum á leigumarkaði ef þetta fer óbreytt í gegn. En ég minni á að það mun ekki gerast strax út af efnahagsástandi í boði þessarar ríkisstjórnar.