húsaleigulög.
Virðulegur forseti. Mér líður alltaf oftar og oftar hér í þingsal eins og ég sé staddur í hinni ágætu gömlu klassísku kvikmynd þar sem leikarinn Bill Murray fór með aðalhlutverkið, „Groundhog day“, þar sem sami dagurinn endurtók sig aftur og aftur og aðalpersónan upplifði alltaf sama daginn aftur og aftur. Það er svolítið sama upplifunin þegar kemur að frumvörpum, sérstaklega sem koma úr ranni Flokks fólksins. Það er alveg sama hvað er reynt að fara yfir, hversu gölluð frumvörpin eru og hversu miklir vankantar eru í vinnslu frumvarpanna og efnistökum og afleiðingum; það gerist ekki neitt.
Ég held að það sé ágætt að rifja upp þegar frumvarpið um launavísitöluna kom hér um að tengja örorkubætur við launavísitölu, þá lögðust allir á eitt, meira að segja Læknafélag Íslands, fjármálaráð, fjármálaráðuneytið, helstu hagfræðingar landsins, Seðlabankinn, sem fékk ekki einu sinni að koma í heimsókn eða koma fyrir nefndina, Samtök atvinnulífsins og verkalýðsforystan — allir lögðust á eitt og töluðu um hversu alvarlegar afleiðingar þetta myndi hafa að setja ríkisfjármálin hér á sjálfstýringu. En nei, ekki neitt. Það hafði engin áhrif og sagt var að kostnaðurinn yrði 2–3 milljarðar. Kemur svo á daginn að hann er 9–10 milljarðar núna fyrsta árið, 9–10 milljarðar. Svo veltir fólk fyrir sér af hverju þarf að hækka skatta. Núna erum við á nákvæmlega sama stað. Hér í fundarstjórn áðan hlustuðum við á hæstv. ráðherra tala um að þetta væri bara óábyrgt tal í seðlabankastjóra, óábyrgt tal, þar sem hann kallaði þessa aðgerð, þetta frumvarp, beinlínis heimskulegt, virðulegur forseti. En ekki neitt. Það er ástæðan fyrir því að það er orðin algjör undantekning ef frumvörp frá Flokki fólksins fara orðið í samráð og alls ekki stærstu og viðamestu frumvörpin sem munu hafa einna mest áhrif. Ekkert samráð. Ég kalla það ekki samráð að rölta yfir í Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og að fólk milli ráðuneyta setjist yfir kaffibolla og ræði málin. Það er ekki samráð, virðulegur forseti. Hvað hefur svo komið á daginn eftir umræðuna eftir að þetta mál var lagt fram? Jú, formaður Samtaka iðnaðarins og Samtök iðnaðarins hafa stigið fram, Húseigendafélagið og fleiri hafa stigið fram og allir tala um nákvæmlega það sama: Þetta frumvarp mun leiða til þess að eignum fækkar á markaði og leiguverð hækkar. Þess vegna er ekki að ástæðulausu — og þetta er ekki í fyrsta skipti, þetta er ekki fyrsta aðförin að húseigendum, að eignarréttinum og samningsfrelsi fólks sem lýsir sér í frumvörpum fólks, flokksins Flokks fólksins. Og í hvert skipti sem þessi frumvörp koma fram þá þagna lömbin, þá eru þingmenn Viðreisnar hljóðir. Þeir læðast með veggjum og tjá sig ekki um málið og vilja helst ekkert af þessum málum vita. En vond mál eiga að fara í gegn, alveg sama hvað þau munu kosta skattgreiðendur þessa lands, til þess að halda ráðherrabekknum saman. Það er ekki mikill bragur yfir því eða mikil reisn yfir þeirri hæstv. ríkisstjórn sem svona heldur á málum þegar samstaðan er algerlega rofin, hugmyndafræðileg samlegð er engin og samstarfsflokkarnir þegja á meðan hvert dellumálið fer í gegn þar sem allir sérfræðingar landsins eru búnir að tala um að þetta muni hafa þveröfug áhrif.
Virðulegur forseti. Þetta er vont mál. Þetta er mál sem á að fara aftur til ríkisstjórnar. Þetta er mál sem á að vinna betur og á að fara inn í samráðsgátt eftir meðferð ríkisstjórnar eða bara mál (Forseti hringir.) sem á ekkert að koma inn í þingið yfir höfuð og það væri besta lendingin, virðulegur forseti. En þetta mál, að það skuli vera hér til umræðu og vera komið á þennan stað í þingsal, virðulegur forseti, er fyrir neðan allar hellur. (Forseti hringir.) En eins og ég segi þá erum við þingmenn hér að upplifa „Groundhog day“.