húsaleigulög.
Frú forseti. Þetta var nú aðeins tekið fyrir hér áðan undir liðnum fundarstjórn forseta þar sem hæstv. ráðherra tók þátt í umræðunni en eðli málsins samkvæmt er um afar naumt skammtaðan tíma að ræða í þeim dagskrárlið. Þar fórum við m.a. hér, nokkrir þingmenn úr minni hlutanum, yfir hversu vont og slæmt það er að mál sem þetta rati ekki í samráðsgátt stjórnvalda og röktum í eins stuttu máli og okkur var frekast unnt hvað við gætum í raun og veru sparað í orðræðu hér inni í sal og komið jafnvel í veg fyrir í nefndastarfi, eftir að umsagnir berast, hugsanlega annmarka á þeim málum sem við erum að fjalla um.
Ég vil gjarnan taka undir hér, frú forseti, með því sem kom fram í máli Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur, að það er að verða dálítið hvimleitt hvað mál koma illa undirbúin inn í þennan sal. Og í þessu máli, af því að við höfum verið að kalla eftir fyrirsjáanleika, og kölluðum mikið eftir hér í mörgum stórum málum í fyrra, þá má þó segja þessu máli til hróss að það innifelur fyrirsjáanleika.
En einmitt þess vegna, frú forseti, einmitt þess vegna hefði verið alveg einboðið að gefa þessu máli þótt ekki væri nema tvær vikur, þótt ekki væri nema tvær vikur í samráðsgáttinni til að fá inn umsagnir sem hefðu hugsanlega getað losað okkur við að þessi umræða færi fram fyrst og fremst á forsíðum blaðanna. Ekki það, ég geri engar athugasemdir við að það fari fram umræða þar, en hún hefði kannski orðið með öðrum hætti ef það hefðu borist umsagnir sem tekið hefði verið tillit til. Þá hefðum við fengið kannski hófstilltari fyrirsagnir í fjölmiðlunum og, að ég tel, næsta örugglega betra frumvarp að því gefnu að tekið hefði verið tillit til þeirra umsagna sem hugsanlega hefðu borist. En af því að ég var að tala um fyrirsjáanleikann þá er rétt að ítreka að gildistakan er 1. júlí 2027, þannig að við höfðum þennan tíma.
Það var ekki tímapressunnar vegna, frú forseti, sem því var sleppt að fara með þetta í samráðsgátt, og þetta er nú ekki í fyrsta skipti sem á að beita þessari aðferð. Ég veit ekki hvers vegna. Ég veit ekki hvort það er til þess að losna við einhverjar óþægilegar umsagnir eða, eins og hér hefur verið vikið aðeins að, að það kunni að vera, eins og kom fram í máli hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar, vegna þess að það séu mögulegar sættir að myndast á vinnumarkaði. Ég tel það nú frekar ólíklegt vegna þess að þegar frumvarpið er unnið og sú ákvörðun tekin að þetta frumvarp fari ekki í samráðsgátt þá var sú mögulega lausn alls ekkert í sjónmáli, þannig að ég tel þau rök frekar, ef ekki mjög, langsótt.
Síðan hefur verið rætt nokkuð um væntingar, var gert þegar við byrjuðum að ræða þetta mál, og það kom líka fram í máli hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar þá að Leigjendasamtökin og verkalýðsfélögin hefðu haft miklar væntingar um þetta og væru jákvæð gagnvart þessu frumvarpi. Þess vegna þurftum við, sem ekki höfðum aðgang að gögnum sem skila sér að öllu jöfnu úr samráðsgátt, bara að fara í símann og hringja í fólk og fulltrúa verkalýðsins hér og þar á landinu og það er ekki mín upplifun að fólk sé búið að mynda sér endanlega afstöðu til þessa. Ég fékk í þeim símtölum hvorki jákvæð né neikvæð viðbrögð, einfaldlega að það væri ekki búið að leggjast yfir þetta frumvarp í þeim mæli að menn væru tilbúnir að vera með einhverjar yfirlýsingar. Þannig að ég veit ekki alveg hvaðan hv. þingmaður hefur það að það ríki almenn jákvæðni gagnvart frumvarpinu eins og það lítur út, því eftir mína fyrirgrennslan er einfaldlega ekki komin niðurstaða. En svo ég láti þetta njóta sannmælis þá voru, eins og ég segi, viðbrögðin hvorki jákvæð né neikvæð, þau voru einfaldlega ekki tilbúin.
Það sem, frú forseti, við óttumst mest, óháð því furðuverki að fara ekki með þetta frumvarp í gegnum samráðsgáttina, og ég hygg að við hefðum fengið ábendingar um slíkt ef það hefði verið gert, eru mögulega öfug áhrif, þ.e. hvað gera leigusalar þegar þeir vita af slíku frumvarpi í fæðingu með gildistöku næsta sumar? Það sem allir í bisness gera. Þeir reyna að gera sér grein fyrir þeirri sviðsmynd sem fram undan er til 12 mánaða, og 12 mánaða vegna þess að það er sérstaklega í þessu frumvarpi. Þá gerir leigusalinn væntanlega ráð fyrir verstu mögulegu sviðsmynd og verðleggur leiguíbúðina samkvæmt því. Það eru eðlileg viðbrögð þeirra sem eru í bisness og það verður að taka það fram í þessu samhengi að mjög stór hluti þeirra eigna sem eru í útleigu á íslenskum leigumarkaði eru íbúðir sem einstaklingar eiga, ekki óhagnaðardrifin leigufélög eða slíkt, heldur einstaklingar sem eiga kannski eina til tvær íbúðir, mögulega keyptar vegna þess að viðkomandi átti börn í skóla á höfuðborgarsvæðinu en bjó úti á landi og svo þarf að koma íbúð í leigu þess á milli, jafnvel milli barna og skólastiga og annað. Þá gerir viðkomandi leigusali eðli málsins samkvæmt ráð fyrir verstu mögulegu sviðsmynd til að tapa nú ekki á fjárfestingunni, sem oft og tíðum er talsvert skuldsett. Þá er næsta og eðlilegasta spurningin að mati þess sem hér stendur: Hvað ef niðurstaðan er svo sú að 12 mánuðum liðnum, þegar greiðsla hefur farið fram samkvæmt verstu mögulegu sviðsmynd og horft er aftur í tímann, 12 mánuði aftur í tímann, að þá kemur í ljós að versta mögulega sviðsmynd hefur alls ekki teiknast upp, hefur alls ekki raungerst?
Jú, svarið við þeirri spurningu, frú forseti, er að leigutakinn hefur greitt hærri leigu en ella. Hann hefur tekið á sig greiðslubyrði miðað við verstu mögulegu áætlanir, verstu mögulegu sviðsmynd sem ekki raungerðist og hefur því ofgreitt leigu í 12 mánuði.
Þessu finnst mér frumvarpið ekki svara, frú forseti, en ég vona auðvitað að hæstv. ráðherra muni kannski geta svarað þessu að einhverju leyti þegar hann tekur til máls hér, vonandi á eftir. En frumvarpið sem slíkt svarar þessu ekki. Og mér finnst ábyrgðarhluti að setja málið þannig fram að þetta sé eitthvað í anda þess sem hér var í umræðunni fyrir ekki svo löngu og þá var gjarnan kallað leiguþak, sem ég held að almenningur hafi túlkað þannig að leigan yrði fest, þá væntanlega með skömmum fyrirvara, til að tryggja einhvern fyrirsjáanleika.
Þetta frumvarp, frú forseti, gerir það ekki. Þetta frumvarp mun líklega á næstu mánuðum, mögulega þó ekki fyrr en snemma á næsta ári, stuðla að talsverðri hækkun á leiguverði nema á móti komi eitthvert verulega aukið framboð á leigumarkaði sem gæti haldið því niðri. En það er þá ekki frumvarpið sem er að bjarga því, það eru þá einhverjar markaðsaðstæður sem koma í veg fyrir þau áhrif sem við óttumst að geti orðið. En fari þetta fram svona, þá ítreka ég að við höfum áhyggjur af því, mörg hver, að þetta muni verða til þess að fólk setjist niður og hugsi: Hvernig kem ég í veg fyrir að leigutekjurnar sem ég hef af þessari tilteknu eign rýrni svo mjög að þær jafnvel standi ekki undir greiðslubyrði af skuldsettri eign? og bregðist við því með því að hækka leiguna verulega til að vera komið í öruggt 12 mánaða skjól.
Auðvitað skil ég ásetninginn í frumvarpinu og geri ekki athugasemdir við hann í sjálfu sér. En ég óttast hins vegar, frú forseti, að hann muni ekki raungerast, ásetningurinn muni ekki nást. Vegna þess að í þessu frumvarpi, eins og svo mörgum öðrum sem við höfum séð, kílómetragjaldinu, veiðigjöldunum, gjöldunum á bifreiðar, vörugjöldunum, og ég gæti haldið áfram að telja svona upp, þá er ekki gert ráð fyrir því sem er oft kallað bara mannleg hegðun. Þetta kann að ganga upp í einhverju reiknilíkani sem kann engin skil á mannlegri hegðun. Þegar ég er að víkja hér að mannlegri hegðun er vísað til þess sem ég sagði hér áðan, að auðvitað munu eigendur þessara íbúða setjast niður og gera einhverjar ráðstafanir til að bera ekki skarðan hlut frá borði vegna þessa frumvarps.