158. löggjafarþing — 14. fundur,  7. okt. 2026.

húsaleigulög.

157. mál
[15:13]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni Þorgrími Sigmundssyni fyrir hans afbragðsgóðu yfirferð yfir málið. Mig langar hins vegar aðeins að fá að eiga orðastað við hv. þingmann í ljósi þess sem seðlabankastjóri sagði nú í morgun á fundi peningastefnunefndar þar sem tilkynnt var að vextir stæðu óbreyttir. Þá var hann spurður sérstaklega út í þessa leigubremsu og þessi húsaleigulög sem við erum að ræða akkúrat hér núna. Það er ágætt að halda því til haga að þetta er ekki fyrsta inngrip stjórnvalda inn í eignarrétt eða samningsfrelsi fólks. Þetta er alls ekki fyrsta inngripið og mér segir svo hugur að þetta verði ekki síðasta tilraun hæstv. ríkisstjórnar með Flokk fólksins í fararbroddi til að reyna að grípa inn í og hafa sem mest áhrif á eignarrétt fólks.

Í ljósi þess og þeirra ummæla sem féllu í morgun hjá seðlabankastjóra um að þessi lög væru heimskuleg, þá langar mig að spyrja hv. þingmann: Finnst honum það ekki skjóta svolítið skökku við, í ljósi þess hversu umdeild lögin eru, jafnvel innan stjórnarflokkanna, það þarf ekki annað en að horfa hér á svipbrigði þingmanna Viðreisnar til þess að sjá það, finnst hv. þingmanni þá ekki svolítið sérstakt og skjóta skökku við að í gærkvöldi voru þessi lög sett inn sem hluti af kjarasamningi við hluta verkalýðshreyfingarinnar?