158. löggjafarþing — 14. fundur,  7. okt. 2026.

húsaleigulög.

157. mál
[15:17]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir hans fyrra svar og ég heyri hvíslið í hv. þingmanni. Honum gefst tækifæri á að koma hér upp aftur en ég ætla aðeins að fá að halda áfram með það sem hæstv. ríkisstjórn var að gera hér í gærkvöldi. Hún er að setja lög, er að skuldbinda sig til þess að setja einhver lög inn í kjarasamninga sem ekki er búið að samþykkja. Og ummæli seðlabankastjóra eru ekki þau einu. Þegar þessi lög voru skrifuð inn í kjarasamningana í gær voru Samtök iðnaðarins, Húseigendafélagið og fleiri búin að tjá sig um þetta mál. Þannig að þetta var ekki eitthvað sem kom alveg upp úr þurru. Þetta var eiginlega bara svona punkturinn yfir i-ið. Þá veltir maður fyrir sér hvað hæstv. ríkisstjórn er í rauninni að gera með því að setja inn einhver loforð um einhver lög sem strax er komin mikil gagnrýni á og hvort það sé í rauninni ekki vísbending um að það verði alveg sama — og þetta verði eins og með launavísitöluna fyrir öryrkjana — það verði alveg sama hverjir komi hér og bendi þeim á að þetta sé allt della, þetta séu misgjörðir, miklir vankantar, þá verður þetta mál keyrt í gegn af því að ríkisstjórnin er búin að lofa þessu í kjarasamningum.

Mig langar að spyrja hv. þingmann: Hvað finnst honum um svona vinnubrögð og telur hann að það sé í rauninni alveg sama? Við vitum að þau munu ekki hlusta á okkur, hv. stjórnarandstöðu, en þau munu líklega ekki hlusta á sérfræðingana heldur af því að þetta mál á að keyra í gegn óbreytt. Það er búið að skrifa það inn í kjarasamninga, sama hversu vitlaust það er.