158. löggjafarþing — 14. fundur,  7. okt. 2026.

húsaleigulög.

157. mál
[15:22]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég vil fyrst biðjast afsökunar á því að hafa ekki verið í sal þegar kallað var til mín í ræðu hér rétt áður. En hv. 3. þm. Norðaust. gerði mér þann óleik að vera í annarri ræðu sinni en ekki þeirri fyrstu, eins og ég hélt, sem ruglaði aðeins skipulagið. (Gripið fram í.) En mig langar til að leggja í púkkið nokkur orð um þetta ómögulega mál.

Fyrst vil ég byrja á að reyna að ramma inn einhverja stóra mynd sem snýr að því að ég óttast að frumvarpið, og ég dreg það ekki í efa að það sé góð meining á bak við það sem hér er lagt til — ég óttast að áhrif þessa máls verði mest og verst á þá sem síst skyldi og þá sem ætlunin er í raun að rétta hjálparhönd með málinu eins og það liggur fyrir í dag. Það eru margir búnir að fara inn á samráðsleysið og það er auðvitað kapítuli út af fyrir sig. Ég ætla að spara mér þann tíma sem ég hafði séð fyrir mér að setja í samráðsumræðuna en þetta er auðvitað fráleitt með tilliti til þess hvenær gildistakan er, í júlí á næsta ári og júlí ári síðar, gagnvart eldri samningum. Það eru sjónarmið sem þurfa að koma til skoðunar í hv. nefnd varðandi afturvirknina sem þarna er innleidd, hvort eðlilegar meðalhófsreglur hafi verið hafðar til hliðsjónar í þeim efnum, sem mig grunar að sé ekki staðan. En það sem er hér í raun verið að gera er að það er verið að innleiða þróun leiguverðs með þeim hætti að það eigi sér stað í stökkum, svona, með leyfi forseta, „shock treatment“, árlegt, gagnvart leigutökum. Ég held að það sé að mörgu leyti haganlegra, bæði fyrir leigutaka og leigusala, af því að það gefur leigusölum líka svigrúm til að taka áhættufaktor verðbólgunnar út úr upphafsmati hvers árs hvað þróun leigu varðar, að þurfa ekki að binda sig í það fyrirkomulag sem hér er lagt til.

Milli 50 og 60% leigusala, ef ég man rétt, eru bara einstaklingar sem eru að leigja annaðhvort aukaíbúð í húsi eða aukaíbúð eða íbúðir á almennum markaði sem hafa þá verið fjárfestingar eða keyptar undir börn sem fóru í skóla eða hvernig sem það er til komið. Kjarninn í leigumarkaðnum eru einstaklingar og fjölskyldur sem eru að leigja út eignir sem ekki eru í notkun og ég óttast að áhrifin af þessu máli verði þau að það verði meira óöryggi fyrir leigutaka í raun vegna þess að fyrirkomulagið eins og hér er lagt upp með mun ýta undir hvata til þess að gera nýja samninga, mögulega við nýjan aðila, vegna þeirrar eignar sem undir er.

Sömuleiðis mun þetta frumvarp stækka báknið enn einu sinni, eins og það sé sérstakt markmið. Þó að atvinnuleysi hafi verið meira en æskilegt er undanfarið þá getur það ekki verið lausnin að fjölga opinberum starfsmönnum í annaðhvort gagnslausum eða verri en engum störfum, eins og ég óttast að þetta geri, með fullri virðingu fyrir þeim sem vinna hjá HMS og munu sinna þessum óþarfaverkefnum síðar. Þessi verkefni verða ekki til framleiðniaukningar í samfélaginu. Þetta er óþarfi. Þetta er verra en ekki neitt. Ég fullyrði það.

Hæstv. ráðherra Ragnar Þór Ingólfsson, sem horfir á mig: Ég mun, bara eftir tvö ár, ef ríkisstjórninni endist líf, ræða þetta við þig á þessum nótum og spyrja: Hvernig fór? Hvað gerðist svo? Það blasir raunverulega við, og þá vísa ég bara í orð seðlabankastjóra á fundi í morgun og fleiri mætti telja til sem vita eitthvað í sinn haus í þessum efnum, að þetta frumvarp eins og það liggur fyrir mun bæði hækka verð til lengri tíma litið, ekki bara út af þessum stökkum þar sem leigusali þarf að gera ráð fyrir verðbólguþróun ársins í fyrstu greiðslu þess tiltekna árs, heldur líka vegna þess að íbúðum mun fækka, framboð mun minnka og leigusalar munu þurfa, og kemur ekki til af góðu, að hafa meiri vara á sér en verið hefur. Allt mun þetta reynast mótdrægt leigutökum. Ef ég man rétt, þó að hv. þm. Kristján Þórður Snæbjarnason hafi lýst því í ræðu í fyrradag að það væru nú bara ýmsir sem vildu vera á leigumarkaði og ekki binda fé sitt í fasteign, þá er staðreyndin sú að næstum því allir sem eru á leigumarkaði vilja frekar vera í eigin húsnæði. Mig minnir að talan sé eitthvað á milli 85 og 90%, fólk vill eiga sitt eigið þak yfir höfuðið og ríkisstjórnin, í hverju málinu á fætur öðru, dregur úr tækifærum og möguleikum fólks til þess. Það er ekki fallega gert. En þessi misskilda og raunverulega jákvæða meining kemur alltaf niður á sama stað, á þeim sem síst skyldi, þeim sem ég held raunverulega að Flokkur fólksins vilji hjálpa með þessu máli í þessari misskildu velvild. En það má auðvitað lesa eilítið í það að það er lítil þátttaka í þessari umræðu hér í salnum. Báðir þingmennirnir sem tóku þátt með einni ræðu og andsvörum þegar það var rætt hér á mánudaginn eru hér vissulega og fyrir það ber að þakka, en fleiri hafa ekki lagt orð í púkk utan flokksfélaga hæstv. ráðherra. Það segir nú ákveðna sögu að enginn, beinlínis enginn, þingmaður Viðreisnar láti svo lítið að einu sinni mæta í andsvar um nokkurn skapaðan hlut í þessu máli. Auðvitað líður þeim illa með málið. Hagfræðingahjörðin sem þarna er í forystu veit alveg hvers lags della þetta er. En það ber auðvitað að þakka það að hv. þingmenn Ragna Sigurðardóttir og Kristján Þórður Snæbjarnason taki hér þátt í þessari umræðu.

Að frumvarpinu. Fullyrt er að ávinningur fyrir leigjendur komi fram en það er lítið um útreikninga eða sannfærandi rök sem undirbyggja þá staðhæfingu. Maður verður í því samhengi að spyrja hæstv. ráðherra, ég veit að hann kemur í ræðu í lok þessarar umræðu þannig að ef tími gefst til þá væri ég þakklátur fyrir að fá svör við einhverjum af þessum vangaveltum: Hvaða útreikningar sýna að heildarleigugreiðslur heimila lækki þegar ráðuneytið gerir sjálft ráð fyrir því að grunnleiga hækki vegna breytinganna? Ég ítreka: Þegar ráðuneytið sjálft gerir ráð fyrir því að grunnleiga hækki þrátt fyrir breytingarnar? Það þýðir að ráðuneytið sjálft gerir ráð fyrir því að leiga á fyrsta mánuði þess tiltekna leigusamnings verði hærri en hún annars hefði verið. Það eru skilaboð ráðuneytisins sjálfs. Síðan er sérstök aðgerð að tryggja verðtryggingu í sessi þar sem verðtryggingin er lögð fram sem einhvers lags alltumlykjandi og yfirþekjandi þak á breytingar sem eru svona útfærðar sem þrjár mögulegar leiðir. Það kemur svolítið á óvart í ljósi þess sem fyrirsvarsmenn hæstv. ríkisstjórnar hafa sagt í garð verðtryggingarinnar en áhugavert, við látum þar við sitja.

Síðan ætlaði ég nú að koma hérna inn á þetta samráðsleysi, sem er auðvitað alveg kostulegt, en ég ætla að spara mér þann tíma. En mig langar til að nefna það sem varðar eldri leigusamninga sem eiga að falla undir þetta regluverk 1. júlí 2028. Það voru notuð sem rök um að það væri ekki farið í samráðsgátt með málið til að fyrirbyggja að leigusamningar hækkuðu í verði, þrátt fyrir að gildistaka málsins sé 1. júlí 2027 gagnvart almennum leigusamningnum og 1. júlí 2028 gagnvart eldri leigusamningnum. Þetta eru eiginlega algerlega óskiljanleg rök og þau falla bara um sjálf sig því að við erum að horfa hér á hartnær tveggja ára líftíma fram að þeim tíma að eldri leigusamningar falla þarna undir og menn höfðu áhyggjur, að því er virðist, af einhverjum nokkrum vikum í samráðsgátt. Þetta er allt einhver sýndarmennska og fyrirsláttur. Er ekki líklegast að ástæða þess að málið fór ekki í samráðsgátt hafi verið sú að menn reiknuðu með þeim viðbrögðum sem komið hafa fram frá til að mynda seðlabankastjóra í morgun, frá framkvæmdastjóra, frekar en formanni, Húseigendafélagsins og fleiri mætti telja og síðan auðvitað bara almennri hagfræðiþekkingu? Því að það var alveg rétt sem seðlabankastjóri sagði á fundinum í morgun: Þetta er kennt í fyrstu grunnkúrsum hagfræði. Það þarf ekki að vera langskólagenginn til að misskilja þetta. Menn ná því kannski fram með einhvers lags skaðmenntun en ekki þessari hefðbundnu.

Það fer nú að styttast tíminn hjá mér, virðulegur forseti. Síðan er atriði sem mig langar til að benda á og nefna að nefndin skoði sérstaklega, en það er ósamræmi í klásúlu er varðar atvinnuhúsnæði sem þarf að leiðrétta þarna. Í skýringum við 3. gr. á blaðsíðu 14 er sagt að nýju reglurnar taki jafnt til íbúðarhúsnæðis, atvinnuhúsnæðis og annars húsnæðis. En það er hins vegar þannig að ákvæði húsaleigulaga um atvinnuhúsnæði eru almennt frávíkjanleg skv. 2. mgr. 2. gr. þannig að frumvarpið breytir ekki því ákvæði. Þannig að í svona excel-tungutaki þá lenda menn hér í einhvers lags „circular reference“, með leyfi forseta. Ég verð því að spyrja hæstv. ráðherra: Mega aðilar samninga um atvinnuhúsnæði áfram semja um mánaðarlega vísitölutengingu? Og ef svo er, hvar er heimildin til að víkja frá þeirri reglu? Og hvar er 2. mgr. 2. gr. breytt til að heimila það? Ég held að þetta séu mistök en það verður að flagga því hér við þessa 1. umræðu því að greinargerðin leiðir ekki fram réttan skilning á þessu ósamræmi, sýnist mér.

Síðan auðvitað, eins og ég kom örsnöggt inn á áðan, þá kallar það auðvitað á ítarlegt mat þar sem horft er til meðalhófs varðandi þessa eldri samninga og með hvaða hætti menn nálgast þá. Tillagan hér er að það taki ekki gildi fyrr en 1. júlí 2028. En menn hljóta að þurfa að spyrja sig: Hvað svo og til hvers er unnið í því samhengi? Ég nefni það í samhengi við vinnu nefndarinnar sem fram undan er, ef þetta mál heldur áfram og klárast einhvern tímann í gegnum 1. umræðu, sem það gerir nú væntanlega. En mig langar samt að spyrja ráðherra beint: Hvaða meðalhófsmat liggur til grundvallar breytingum á gildandi samningum og hvers vegna er þessi eins árs viðbótaraðlögun talin nægjanleg? Var lagt mat á það að til þetta gæti gengið upp með tilliti til hefðbundins meðalhófs, eða lögbundins öllu heldur, þá þyrfti þetta að vera sex, átta, 18, 24, 36 eða 84 mánuðir? Það geta ýmis sjónarmið skipt máli í því samhengi.

Síðan verður að gagnrýna skort á áhrifamati á námsmannahúsnæði og síðan á stöðu sveitarfélaga þar sem maður verður sömuleiðis að velta þeirri spurningu til ráðherra hvaða gögn það eru sem styðja það að breytingar hafi engin áhrif á sveitarfélög, námsmannahúsnæði eða áfangaheimili og hvort leitað hafi verið umsagnar þessara aðila. Ég spyr þessarar spurningar auðvitað í stríðni en þetta er engu að síður atriði sem þarf að huga að gagnvart vinnu nefndarinnar.

Síðan, svona undir lokin í þessari ræðu minni, eru framkvæmd og lagaskil ekki nógu skýr í þessu frumvarpi. Það er auðvitað höfuðverkur sem nefndin fær inn á borð til sín. Það eru t.d. sjónarmið um hvernig verðhjöðnun verður hanteruð í þessu samhengi. Kærunefndin þarf að koma til sérstaklega sérstakrar skoðunar og fleira mætti nefna. Það er nefnilega þannig að þó að viljinn sé góður með frumvarpi eins og hér er lagt fram, og ég dreg það ekki í efa, svo því sé haldið til haga, að hæstv. ráðherra meini vel með þessu máli, en ég held að það sé byggt á einhverjum grundvallarmisskilningi um áhrif málsins sjálfs þegar á reynir. Það er það sem ég er að reyna að vara við hér í þessari ræðu minni og vona að tekið verði tillit til og að væntanlega hv. velferðarnefnd skoði það ítarlega hvar svona helstu skítapottarnir, svo ég noti nú hugtak sem hefur verið notað hér í þessum ræðustóli nýlega, eru í þessu máli, því að þeir eru býsna margir, sýnist mér, og flestir valda þeir skaða þar sem ætlunin er að liðka fyrir og rétta hjálparhönd með þessu máli. Það er ekki vel útfært þingmál og skrifast kannski að nokkru leyti á það að hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) hafi ekki lagt í að senda þetta mál til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda og eiga þetta hefðbundna samráð sem er svo mikilvægt og er svo líklegt til að bæta mál (Forseti hringir.) sem eru til vinnslu hverju sinni.