158. löggjafarþing — 14. fundur,  7. okt. 2026.

húsaleigulög.

157. mál
[15:38]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir sína ræðu. Það sem ég vildi fara yfir og spyrja að er kannski fyrst og fremst um eðli frumvarpsins sem byggist á almennum takmörkunum á því hvernig má hækka húsaleigu á Norðurlöndunum og gengur í engu eins langt og það regluverk sem þar er á markaði. Og hvort viðbrögðin séu ekki nokkuð ofsafengin í því ljósi að við erum eiginlega að ganga hvað styst í öllum samanburði við önnur Norðurlönd, sérstaklega í ljósi þess sem kom fram í fundarstjórn forseta, orð seðlabankastjóra sem voru til umræðu — við erum ekki bara að tala um Norðurlöndin. Nú hafa t.d. í Bandaríkjunum verið sett mun stífari skilyrði gagnvart hækkun leiguverðs og um leiguverð almennt, nú síðast í New York, og þetta er nú talið land tækifæranna. (Berg Ó: Farðu að koma þér að þessu.)

Ég er að tala um það sem hefur verið að gerast nú nýverið, ástandið á Spáni og í sjálfu sér þau áhrif sem óheftur markaður hefur haft á húsnæðismarkaðinn, kjör fólks almennt séð og uppbyggingu skortstöðu sem hefur ríkt á húsnæðismarkaði, til dæmis á Spáni, hvort þessi viðbrögð séu ekki svona frekar ofsafengin af því að í frumvarpinu stendur skýrt hvernig skal hækka leigu, meira að segja í breytingum á 37. gr. Þar er heimild, ef rekstrarkostnaður eða viðhald verður mikið eða verulegt, annaðhvort vegna endurbóta eða viðhalds, til að bregðast við því umfram þær (Forseti hringir.) takmarkanir á hækkunum sem eru í frumvarpinu.