158. löggjafarþing — 14. fundur,  7. okt. 2026.

húsaleigulög.

157. mál
[15:40]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra andsvarið og er dálítið stoltur yfir því að hafa aldrei áður verið talinn hafa mætt hér með ofsafengin viðbrögð í pontu; ég bara reyni að sprauta mig niður. Mér þykir kannski ekki endilega skynsamlegt að vísa til sósíalistanna í New York og á Spáni hvað varðar lausnir á húsnæðisvanda í þessari borg annars vegar og lands hins vegar, þó að vandinn sé auðvitað staðbundinn á Spáni eins og yfirleitt er í þessum efnum. Þetta er þó venju fremur landsþekjandi á Íslandi nú um stundir. Það er auðvitað að miklu leyti til komið vegna ákvarðana stjórnvalda og kannski sérstaklega hér í Reykjavík. Þau áhrif sem hafa komið fram af lóðaskortsstefnu Samfylkingarinnar, sem var rekin hér um langt árabil, eru auðvitað fíllinn í herberginu í þessu samhengi. Skaðinn sem af því hefur hlotist er gríðarlegur. En síðan, eins og stundum vill verða hjá okkur, sveiflumst við öfganna á milli og nú erum við á þeim stað að markaðurinn er botnfrosinn, sérstaklega hvað varðar framleiðslu íbúðareininga og sölu þeirra en ekki síður stöðuna á leigumarkaði hér heima.

En punktur minn, sem ég vil kannski sérstaklega halda til haga, er að það verður að skoða svona breytingar í samhengi. Þegar við blasir að sýknt og heilagt er verið að breyta regluverki í umhverfi leigu á íbúðarhúsnæði, reyndar á atvinnuhúsnæði líka í þessu máli, til þess að gera það svona meira umhendis fyrir þá sem eru að leigja út aukaíbúð í húsi eða (Forseti hringir.) íbúðir, tvær eða þrjár, þá óttast ég að íbúðum fækki á markaði. Það mun hækka verð og verð mun líka hækka vegna þessarar reglu um að verð megi bara hækka í stökkum (Forseti hringir.) hér eftir. Ég óttast að upphafsstaðan verði hærri en annars hefði orðið og að það muni allt reynast erfiðast þeim sem síst ráða við það.