húsaleigulög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og tek fram að mér finnst hann síst vera ofsafenginn í tilsvörum sínum og ræðum. (Gripið fram í.) Hins vegar voru viðbrögðin nokkuð ofsafengin í fundarstjórn í dag. Við erum í raun að tala um tiltölulega litlar breytingar. Regluverkið á Norðurlöndunum varðandi heimildir til hækkunar er yfirleitt þannig að til þess að hækka umfram ákveðið viðmið — í þessu frumvarpi er það almennt verðlag sem er viðmiðið á 12 mánaða fresti. Þetta er bara sambærilegt. En í lögunum, 37. gr., er ákvæði sem er líka annars staðar á Norðurlöndunum sem snýr að því að leigusali þurfi að færa góð og gild rök fyrir umframhækkun. Þess vegna skil ég ekki þessar dómsdagsspár varðandi áhrif þessa frumvarps. Ég er sammála því að of mikil inngrip — og það eru mörg dæmi þess varðandi verðstýringar í Evrópu og víðar að of mikil inngrip í markaðinn hafi haft áhrif á framboð og haft áhrif á leiguverð. En ekki þetta, ekki þessi leið.
Í öllum samanburði erum við að fara — sérstaklega í samanburði við Norðurlöndin sem við berum okkur gjarnan saman við — vægustu leiðina, myndi ég segja, að því að búa til einhvern fyrirsjáanleika fyrir leigjendur. Ég trúi því ekki að þingmenn almennt séð trúi því að hér muni þessi tiltekna takmörkun, þessi fyrirsjáanleiki, hafa teljandi áhrif á framboð á leiguhúsnæði. Ég hef ekki séð nein dæmi um slíkt. Það væri kannski fróðlegt að heyra frá hv. þingmanni hvort hann þekki slík dæmi um sambærilegar breytingar og áhrif á markaðinn.