158. löggjafarþing — 14. fundur,  7. okt. 2026.

húsaleigulög.

157. mál
[15:45]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra andsvarið. Til að svara síðustu spurningunni: Já, ég þekki til dæma en skammast mín hálfpartinn fyrir að hafa þau ekki á takteinum. Ég skal kannski reyna að ramma þau inn og senda hæstv. ráðherra og eftir atvikum í gegnum fulltrúa Miðflokksins í hv. nefnd. En hæstv. ráðherra segir hér að um sé að ræða tiltölulega litlar breytingar. Það gerir það í rauninni enn undarlegra … (fél.- og húsnrh.: Í stóra samhenginu. )Þetta er allt í stóra samhenginu. (fél.- og húsnrh.: Í samanburði við önnur lönd.) — Litlar breytingar í samanburði við önnur lönd, ókei, það er breytt nálgun. En hefði mönnum þá ekki verið enn frekar í lófa lagið að senda málið til almennrar umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda, ef þetta er ekki svona stórt og umfangsmikið og áhrifamikið eins og látið er í veðri vaka af ýmsum — eða þeim fáu svo sem — sem tala fyrir þessu máli nú um stundir? Það er samanlagt ein ræða komin frá öllum þingmönnum Samfylkingar og Viðreisnar, þannig að eitthvað eru menn — þá er ég ekki að telja með andsvör sem komu vissulega líka. En ef þetta mál er svo lítið og einfalt, í samhengi við það sem verið er að gera í nágrannalöndunum, hefði ég bara hvatt hæstv. ráðherra, hefði ég vitað af þessu fyrirfram, til að senda málið til umsagnar. Ég held að hæstv. ráðherra hljóti að átta sig strax á því.

Svo er nú auðvitað sérkapítuli út af fyrir sig tenging málsins við undirritun kjarasamninga í gær en það þekki ég ekki í þaula og treysti mér ekki til að tjá mig um það. En neysluverðsvísitölubindingin, þetta alltumlykjandi þak, getur líka þvingað fram sölu á íbúðum á tilteknum tímapunkti, bara á eignarferli hverrar íbúðar. Það mun eitt og sér (Forseti hringir.) hafa áhrif til fækkunar íbúða sem standa til boða og það mun ýta upp leiguverði. Það getur raunverulega ekkert annað gerst.