húsaleigulög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir hans góðu ræðu. Það var líka athyglisvert að fylgjast með orðaskiptum hv. þingmanns og hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra sem sagði, ef ég heyrði rétt, að þetta væru ekkert svo stórar breytingar í stóru myndinni. Það er nefnilega málið. Ég er reyndar ósammála hæstv. ráðherra um að þetta séu ekki stórar breytingar en málið er nefnilega að þetta er ekki fyrsta frumvarpið sem kemur inn þar sem verið er að skerða eignarrétt, þar sem verið er að skerða samningsfrelsi, þar sem er verið að skerða rétt fólks til þess að eiga viðskipti. Það er nefnilega málið. Yfirleitt þegar forræðishyggjan er að taka yfir, þegar sósíalisminn er að taka yfir, þá er þetta tekið í smáum skrefum og við erum eins og froskurinn í pottinum, tökum ekki eftir því þegar suðan kemur upp. Það er nákvæmlega það sem við erum að sjá gerast núna, smátt og smátt og alltaf þegar þeir sem vita betur koma fram og segja: Þið eruð á rangri leið þá er það bara óábyrgt tal, það er ekki hlustað á það. Það er ekki farið í samráð. Viðkomandi er ekki tekinn fyrir nefnd og þessi viðkomandi, t.d. í þessu tilfelli Seðlabanki Íslands eins og í fyrra. Við þekkjum þetta allt saman. Í smáum skrefum er verið að innleiða hér sósíalískt kerfi á svo mörgum sviðum samfélagsins og til að fjármagna þetta allt saman á að seilast dýpra og dýpra í vasa fólksins í landinu og fyrirtækjanna. Þannig virkar vinstri stefna, þannig virkar sósíalisminn.
Það er búið að benda á að þetta muni hafa áhrif á einmitt litla manninn eins og hv. þm. Sigurjón Þórðarson sagði í gær, talaði alltaf um litla manninn. Hans staða á leigumarkaði (Forseti hringir.) mun versna, staða leigjenda mun versna. Mig langar að spyrja hv. þingmann því líklega mun þetta hafa áhrif á verðbólguna (Forseti hringir.) til lengri tíma: Er ekki galið að við séum að fara í þessa vegferð akkúrat á þessum tímapunkti?