158. löggjafarþing — 14. fundur,  7. okt. 2026.

húsaleigulög.

157. mál
[15:51]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni andsvarið. Það er galið að fara í þessa vegferð núna og það væri í rauninni alltaf galið, held ég, en það er auðvitað þekkt staðreynd að sósíalistar hafa ekki mikla samúð með eignarrétti. Það sem hefur kannski komið mér á óvart er — nú ætla ég að reyna að orða þetta varlega þó að það sé glannalegt sem ég ætla að segja — að svona er sósíalískur áhugi þessarar ríkisstjórnar. Það ætti kannski ekki að koma á óvart að það séu nokkrir sósíalistar í Samfylkingunni, þessum sósíaldemókratíska flokki, og það ætti ekki að koma á óvart að það séu sósíalistar í Flokki fólksins, svona í ljósi þess að Flokkur fólksins er í flokkagrúppu sósíalista á Evrópuráðsþinginu, en það hefur komið mér á óvart að það sé stöku sósíalisti í Viðreisn. Þá vil ég tryggja að undanskilja þann ágæta þingmann sem er hér í salnum, hv. þm. Grím Grímsson. En þeir eru til staðar í öllum flokkum meiri hlutans nú um stundir.

Það er auðvitað býsna snúin vörn að þurfa að mæta svona tangarsókn sósíalisma reglulega hérna í salnum þar sem flokkarnir, að manni sýnist nú oftast undir hatti þingmála frá Flokki fólksins, leggja til atlögu við eignarréttinn. Þetta höfum við séð í málefnum sjávarútvegsins ítrekað og fleiri málum, grásleppuna get ég nefnt og fleira, þar sem eignarrétturinn er svona afgangsstærð þrátt fyrir stjórnarskrárvarða stöðu hans og allt það lagaumhverfi sem er ætlað að tryggja hann. Í vestrænum samfélögum vita menn, þó að stöku sinnum nái sósíalistastjórn völdum eins og í New York nú um stundir og á Spáni, að eignarrétturinn er sennilega það mikilvægasta þegar kemur að því að halda skikki, svo ég orði það nú þannig, á þeim samfélögum sem við höfum byggt upp í hinum vestræna, frjálsa heimi.