húsaleigulög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir hans fyrra svar. Það er nefnilega þannig að menn geta sagst vera hitt og þetta en ef menn eru hluti af ríkisstjórn og ef menn styðja aðgerðir ríkisstjórnarinnar sem er að innleiða sósíalískar aðgerðir á hvert sviðið á fætur öðru, hvað eru menn þá í raun og veru? Sama hvað menn segjast vera úti í bæ, á fundum eða hér í kaffispjalli.
Ég bið hv. þingmann forláts á því að seinni ræða mín áðan var bara fimm mínútur en því miður kemst ég ekki í fleiri ræður í fyrstu umferð. Ég líkti því sem maður horfir upp á núna við hina góðu mynd Groundhog Day þar sem við upplifum sama daginn aftur og aftur og sérstaklega þegar frumvörp Flokks fólksins sem eru hér til umræðu. Hér er slegið á alla ráðgjöf, allar umsagnir og annað. Þau nenna ekki einu sinni að setja mál í samráð, sjá ekki ástæðu til þess. Núna er búið að binda þetta inn í kjarasamninga. Þetta lagafrumvarp er komið inn í kjarasamningana. Þau eru að lofa einhverjum lögum sem Alþingi Íslendinga á eftir að samþykkja. Það sýnir í rauninni viðhorf þessarar ríkisstjórnar og hæstv. ráðherra til þess að hér eiga greinilega stjórnarþingmenn að virka eins og nytsamlegir meinleysingjar og samþykkja allt sem kemur hérna í gegn en ekki sinna hlutverki sínu sem er að setja lög og sitja á löggjafarþingi Íslands, þrískipting valdsins.
Mig langar að spyrja hv. þingmann: Finnst honum þetta ekki orðið bara ein dómadagsvitleysa, þessi sirkus sem við erum að horfa hér á aftur og aftur og aftur?