158. löggjafarþing — 14. fundur,  7. okt. 2026.

húsaleigulög.

157. mál
[15:55]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni andsvarið. Það er auðvitað þannig að ef það labbar eins og önd og kvakar eins og önd þá er það sósíalisti. Það er auðvitað þannig að Viðreisn og Samfylking verða að taka ábyrgð á þessu máli. Þó að við á léttum nótum leiðum fram sósíalismann sem í þessu felst og þær tilhneigingar þeirra þriggja flokka sem nú mynda ríkisstjórn þá er það þannig að ráðherrar Samfylkingar og Viðreisnar byrjuðu á að hleypa þessu máli í gegnum ríkisstjórn. Þegar var búið að hleypa þessu máli í gegnum ríkisstjórn þá hleyptu þingflokkar Viðreisnar og Samfylkingar þessu máli í gegnum þingflokka sína.

Trúið mér, þið sem á hlustið, mál ráðherra stoppa iðulega í þingflokkum. Það gerist reglulega. En þingflokkar Viðreisnar og Samfylkingar ákváðu að hleypa þessu máli í gegn og þau eru þar með orðin algjörlega samábyrg þessu vonda máli. Ég veit að hv. þm. Kristján Þórður Snæbjarnarson er ánægður með það og stoltur af því. Ég held að það sé af því að hann sé að misskilja áhrif málsins að einhverju marki. Það er allt í lagi. Ég hef alveg skilning á því. En Viðreisn — og ég er ekkert að skamma Samfylkinguna, það er í eðli Samfylkingarinnar að vera sósíalísk — en ég ætla að leyfa mér að skamma Viðreisn dálítið og ég held að sá þingmaður Viðreisnar sem á kannski síst skyldar skammir fyrir þetta sitji hér í salnum. Kannski væri því haganlegra að setja þessar skammir fram í öðrum hópi en mér stendur ekki önnur ponta til boða.

Það er auðvitað þannig að Viðreisn ber ábyrgð á þessu máli því að mál sem eru stöðvuð í þingflokkum ríkisstjórnarflokka koma ekki hér inn í þingsal. Vegna eðlis Samfylkingarinnar, það er í DNA-i þeirra að samþykkja svona sósíalísk mál, þá kemur það ekki á óvart og auðvitað samþykkir Flokkur fólksins það, skárra væri það nú, en Viðreisn ber ábyrgð á þessu máli hér í þingsal. Þess vegna verður sérstaklega eftir því tekið ef þingmenn Viðreisnar leggja ekki orð í púkkið. Það mun undirstrika að málið er þeim ekki að geði. Auðvitað ætti (Forseti hringir.) hæstv. fjármálaráðherra að koma til þessarar umræðu, sérstaklega í ljósi orða seðlabankastjóra í morgun, af því að í hina röndina segist ríkisstjórnin vera að taka slag (Forseti hringir.) við verðbólguvæntingar, verðbólgu og vexti. Auðvitað ætti fjármálaráðherra að vera hér og taka þátt í þessari umræðu.