158. löggjafarþing — 14. fundur,  7. okt. 2026.

húsaleigulög.

157. mál
[15:59]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Mig langar að ræða hér um þessar breytingar á húsaleigulögum, nr. 36/1994, reglubundnar breytingar á leigufjárhæð, frá hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra. Ég ætla að taka undir með þeim sem hér töluðu áðan, eins og hv. þm. Bergþóri Ólasyni sem sagði að hann ætlaði engum neitt nema gott með þessu frumvarpi. Ég held að það sé alveg rétt og ég tek undir það að ég ætla engum neitt annað en að menn séu hér að reyna að bregðast við því ástandi sem uppi er í samfélaginu.

En hvaða ástand er í raun og veru uppi í samfélaginu? Við hverju erum við að bregðast, virðulegur forseti? Við hvaða ástandi og í hvaða efnahagslegu ástandi erum við að setja þetta frumvarp fram? Jú, við sjáum stýrivexti í 8% og fögnuðum í morgun þegar stýrivextir voru ekki hækkaðir. Það var sigur. Verðbólgan fer upp, er í 5,9% og hefur hækkað. Hagvöxtur er á leiðinni niður og verðbólguvæntingar ruku upp við framlagningu fjárlagafrumvarpsins. Þetta, virðulegur forseti, er í boði ríkisstjórnar Íslands, þetta ástand í efnahagsmálum. Þessu frumvarpi er ætlað að koma einhvern veginn til móts við leigjendur til að milda höggið sem við þeim blasir, verði fjárlagafrumvarpið samþykkt eins og það liggur nú fyrir.

Auðvitað höfum við heyrt og séð fréttir af því síðustu daga að það séu einhverjar væringar um loforð um breytingar á krónutölugjöldum, barnabótum og mögulega, eins og maður heyrir, að frumvarpið sem við ræðum hér sé partur af einhvers konar samkomulagi sem ég ætla nú kannski ekki að tjá mig voðalega mikið eða djúpt um vegna þess að ég hef ekki séð það. En þetta fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar er að leggja til auknar álögur á venjulegt ungt par upp á 343.000 kr. miðað við þær forsendur sem við höfum verið að gefa okkur í Framsókn og miðað við það reiknilíkan sem við höfum notað og verður birt mjög fljótlega, vonandi í þessari viku á netinu. Þá getur fólk séð sjálft hvað frumvarpið er að auka í álögur á það sjálft. Þetta skiptir máli, virðulegur forseti, þetta skiptir verulegu máli.

Hvar liggja þessar hækkanir? Við sjáum bankaskattinn. Við sjáum að vaxtalækkunin er að tefjast frá því sem menn ætluðu. Við erum búin að glata einu ári og verðbæturnar eru að leggjast ofan á lánin meira en þær hefðu þurft að gera hefðu menn haldið hér af ábyrgum hætti á ríkisfjármálunum. Kílómetragjaldið er að fara að hækka um 15%, jafnvel hátt í 16%, sem mun leggjast þungt á heimilin í landinu og þetta er ofan á þá hækkun sem var í fyrra þegar kílómetragjaldið var hækkað um rúma 3 milljarða. Þetta mun hafa áhrif á íbúa landsbyggðarinnar, m.a. í hækkun á vöruverði, og fyrirtækin á landsbyggðinni sem eru að selja vörur inn á markað á höfuðborgarsvæðinu.

Ég er búinn að tala um krónutölugjöldin. Þessi 5,2% sem einhverjar væringar eru nú um, sem er mjög áhugavert vegna þess að það var einmitt í þessum ræðustól hér þar sem ég átti orðaskipti við hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, Daða Má Kristófersson, þar sem hann sagði þegar ég spurði hæstv. ráðherra hvort það væri nokkur vitglóra í því að hafa þetta í 5,2%, hvort það væri ekki ráð að lækka þetta niður í 2,5%, og svarið sem ég fékk, virðulegur forseti, á þeim tíma var að þetta hefði engin áhrif á vísitölu. Þetta skipti engu máli. Krónutöluhækkanir hefðu engin áhrif á vísitöluna eða mjög lítil, sáralítil, það lítil að það tæki því ekki og skipti ekki máli hvort það væri 2,5% eða 5,2%. Þetta er ríkisstjórnin að bjóða verkalýðshreyfingunni núna án þess að það hafi nein áhrif að mati hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra.

Við erum hér með skattleysismörkin sem hækka ekki, taka ekki þessu 1% eins og lög gera ráð fyrir. Barnabætur haldast óbreyttar og vaxtabætur eru felldar niður. Þá kemur þetta frumvarp, virðulegur forseti, einhvern veginn til þess að reyna að bæta heimilum og leigjendum í landinu upp þá stöðu sem ríkisstjórnin hefur komið okkur í. Þá þarf að koma með plástur og reyna að gera þetta bærilegra fyrir leigjendur í landinu. Gott og vel. En það er ekki hægt að taka þessa umræðu hér í dag öðruvísi en að rifja upp orð seðlabankastjóra í morgun. Hvað segir seðlabankastjóri um þetta? Ég veit, virðulegur forseti, að þetta hefur komið fram í umræðunni áður og ég veit að þetta er eitthvað sem allir hafa heyrt en þetta bara skiptir máli. Hvert er álit seðlabankastjóra og Seðlabankans á þessu frumvarpi? Að það sé heimskulegt og komi leigjendum verst af öllum. Þetta segir seðlabankastjóri og hann bætir við, með leyfi forseta, að þetta sé kennt í öllum grunnkúrsum hagfræðinnar og muni ekki hafa nein áhrif, hvorki til lengri eða skemmri tíma og ekki svo mikið á verðbólgumarkmiðið.

Hver er óttinn, virðulegur forseti? Hvað halda menn að gerist hér? Hvaða sviðsmyndir geta teiknast hér upp varðandi þetta frumvarp, verði það að veruleika? Jú, það getur gerst að leiguverð hækki og að eignum á markaði fækki. Halda menn að þetta sé einhver ótti sem er úr lausu lofti gripinn eða að við séum að reyna að ala á einhverjum ótta? Halda menn, eins og stundum var sagt og meira að segja hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra sagði nú bara í fundarstjórn forseta hér í dag, að minni hlutinn sé bara yfirleitt á móti öllu? Halda menn að við séum að standa hér bara til að vera á móti öllu? Nei, það er ekki þannig. Þetta er vegna þess að við höfum raunverulegar áhyggjur af því að þetta geti gerst, að leiga muni hækka. Og á hverjum mun það bitna? Það bitnar augljóslega á þeim sem eru að leigja.

Hvað segir í frumvarpinu sjálfu? Í kafla 5, sem heitir Samráð, á bls. 11 segir, með leyfi forseta:

„Í ljósi þeirra breytinga sem um ræðir var ákveðið að hvorki áform um lagasetninguna né drög að frumvarpi yrðu kynnt í samráðsgátt stjórnvalda þar sem slíkt gæti hvatt til leiguverðshækkana fram að gildistöku breytinganna.“

Gildistaka laganna, virðulegur forseti, er 1. júlí 2027. Ráðuneytið sjálft hefur áhyggjur af því og hafði áhyggjur af því að með því að setja frumvarpið í samráðsgátt, bara með því að setja frumvarpið í samráðsgátt gæti það leitt til þess að leiguverð myndi hækka, að það væri ekki óhætt að taka áhættuna á slíku heldur yrði að koma með frumvarpið beint inn í þingið til að reyna að lágmarka það að leiguverð myndi hækka þegar frumvarpið yrði gert opinbert. Halda þessir sömu einstaklingar virkilega að slíkt muni ekki gerast fram að 1. júlí 2027? Heldur fólk að það séu einhver önnur lögmál sem gildi núna eða í byrjun næsta árs og fram til 1. júlí? Auðvitað munu leigusamningar taka hækkun. Það er augljóst og ráðuneytið segir það sjálft hér í frumvarpinu, virðulegur forseti. Ég var nú að lesa þetta frumvarp hérna og mér finnst alveg með ólíkindum að í kaflanum um mat á áhrifum sé einhvern veginn skautað fram hjá þessu, það er algerlega skautað fram hjá þessu.

Mig langar að lesa smá klásúlu úr greinargerðinni, um mat á áhrifunum, sem ég held að sé sá kafli sem er að reyna að taka á þessu, sem er að reyna að segja hvað er að fara að gerast. Þar stendur, með leyfi forseta:

„Verði frumvarpið að lögum er talið að fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð verði takmörkuð. Búast má við að grunnfjárhæð leigu uppfærist í samræmi við framtíðarvæntingar um verðbólgu og vænt fjárhagsáhrif af fyrirhuguðum lagabreytingum verði því tímabundin. Helstu áhrifa breytinganna má vænta á árunum 2027 og 2028.“

Já. Þetta tekur gildi 1. júlí 2027. Þetta er eini staðurinn í mati á áhrifum þar sem reynt er að ná utan um það hvað þetta þýðir fyrir leigjendur, til hækkunar eða lækkunar. En samt, í kaflanum um samráð, hafa greinar- og frumvarpshöfundar áhyggjur af því að það sé ekki skynsamlegt að fara með þetta frumvarp í mikla dreifingu vegna þess að það leiði mögulega til þess að leiguverð verði hækkað.

Virðulegur forseti. Þetta eru áhyggjurnar. Mér finnst því miður allt of oft hér í þessum sal að það sé ekki hlustað á ráðgjöf. Það er ekki verið að hlusta á ráðgjöf og ráðleggingar. Ég hvet hæstv. ráðherra og þingið til þess að hlusta á t.d. það sem seðlabankastjóri er að segja og það sem þeir aðilar sem hafa tjáð sig um þetta frumvarp opinberlega hér á síðustu dögum eru að segja og þann samhljóm sem er í öllum, að þetta muni leiða til hærra leiguverðs strax í upphafi leigutíma. Þetta muni leiða til þess að leigusamningum verði sagt upp fyrir 1. júlí og þeir endurnýjaðir með hærri leigu. Hlustið, hlustið.

Það sem ég hef líka áhyggjur af, virðulegur forseti, og nú skal ég viðurkenna að ég get ekki alveg fullyrt það sem ég er að segja hér, en ef þetta frumvarp er hluti af einhverjum samningum milli ríkis og verkalýðsfélaganna í tengslum við kjarasamninga þá velti ég fyrir mér: Hefur þingið einhver verkfæri eða einhverja heimild til að breyta þessum samningi? Er þetta ekki frumvarpið sem var lagt fyrir í samningunum og var samþykkt? Og auðvitað getur — en er ekki búið að binda þingið í báða skó með allar fyrirhugaðar breytingar eða lagfæringar á þessu frumvarpi? Mér er spurn, virðulegi forseti.

Ég sé að tími minn er á þrotum. Ég hlakka til að fá að sjá hvernig þetta frumvarp mun þróast í vinnu nefndarinnar og óska nefndarmönnum góðs gengis í þeirri vegferð sinni. En ef ekkert breytist í þessu frumvarpi í meðförum nefndarinnar, sem, eins og ég fór yfir áðan, ég held að geti orðið svolítið snúið ef þetta er partur af kjarasamningum, þá hef ég áhyggjur af því að þetta muni ekki leiða til góðs fyrir leigjendur og það muni ekki líða á löngu þangað til við verðum komin með sambærilegt eða svipað frumvarp í hendurnar til þess að leiðrétta þetta frumvarp sem við erum með í höndunum í dag.