húsaleigulög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu sem var að mörgu leyti málefnaleg. Við erum kannski ekki sammála um áhrifin af þessu frumvarpi á bæði eftirspurn og leiguverð.
Mig langar að bregðast aðeins við, sem er svo sem það sem hv. þingmaður kemur inn á, varðandi t.d. það að samningar ríkisstjórnar við verkalýðshreyfinguna séu að binda þingið með einhverjum hætti. Þetta kom svo sem líka vel fram í máli hv. þm. Jens Garðars Helgasonar hér áðan. Mig langar að lesa upp bókun úr kjarasamningunum sem verið er að reyna að verja, með leyfi forseta: „að tryggt verði að húsnæðisöryggi leigjenda verði aukið og skýrari rammi settur um ákvörðun og fyrirsjáanleika leigufjárhæðar með breytingum á húsaleigulögum“.
Þetta eru skýr ákvæði sem sett voru en ekki í þessari endurskoðun. Þetta er síðan kjarasamningar voru undirritaðir árið 2024, í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Vinstri grænna. Þetta ásamt fleiri aðgerðum sem námu hátt í 50 milljörðum kr. sem var samið um á vinnumarkaðnum 2024. Þetta var gert líka 2019. Þar minnir mig að talan hafi verið 80 milljarðar.
Ég spyr því hv. þingmann út í áhyggjur hans af því að við séum að binda hendur þingsins með samkomulagi sem gert var í tíð ríkisstjórnar sem hans flokkur m.a. leiddi.