158. löggjafarþing — 14. fundur,  7. okt. 2026.

húsaleigulög.

157. mál
[16:16]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir fyrirtaksandsvar og tek bara undir það að samningarnir 2024 voru virkilega vel heppnaðir. Það var mjög brýnt og gott að ríkisstjórn þess tíma náði utan um það verkefni sem þar blasti við, sem var upplausn á vinnumarkaði. Þetta þekkir nú hæstv. ráðherra úr sínu fyrra lífi. Við þurfum ekkert að eyða löngum tíma og löngu samtali í það.

Það sem ég var einfaldlega að benda á hér í minni ræðu — og sagðist, áður en ég byrjaði, ekki geta fullyrt neitt til að hafa varnagla á því, og mínar upplýsingar eru nú bara af því að lesa fréttamiðla dagsins — ef það er þannig, og nú veit ég ekki hvort það er þannig, ráðherrann getur þá svarað mér því ef hann getur eða má eða vill, að þetta frumvarp sem við erum að ræða um hér í dag sé partur af þeim samningum sem menn eru búnir að skrifa undir, ef þetta frumvarp hefur verið lagt inn í samningana sem þá einhvers konar púsl, síðan er búið að skrifa undir samningana. Þingið á auðvitað eftir að fjalla um málið. Áhyggjur mínar snerust að því að ef það kemur í ljós að menn eru ekki á réttri leið í þessu frumvarpi, erum við þá búin að múlbinda þingið þannig að við verðum einhvern veginn að klára það því að annars yrðu þá kjarasamningsforsendurnar í uppnámi?

Það er þessi nálgun sem ég er að reyna að komast inn á og ég vona að hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) skilji hvað ég er að fara. Ég hef aftur á móti ekki séð þessa samninga og veit ekki hvað er í þeim en ef maður les fréttir dagsins finnst mér þetta líta svolítið þannig út en með öllum heimsins fyrirvörum.