húsaleigulög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sitt svar. Það má auðvitað deila um það og það eru skiptar skoðanir um það hvort ríkisstjórnin eigi að binda sig með þeim hætti sem hún hefur gert undanfarin ár og áratugi við gerð kjarasamninga, bæði á opinberum og almennum vinnumarkaði. Það er bara umræða út af fyrir sig.
Þar sem ekki er um að ræða í sjálfu sér nýja kjarasamninga heldur endurskoðun á ákvæðum samninga sem voru gerðir — og það ákvæði sem ég nefndi hér áðan, sem var alveg klárt og skýrt, að markmið síðustu ríkisstjórnar var að búa til þennan fyrirsjáanleika fyrir fólk á leigumarkaði, og við teljum okkur vera að fara í sjálfu sér almennustu leið sem þekkist í öllum samanburði, og þá vísa ég helst til Norðurlandanna, en mun víðar í Evrópu og meira að segja í Bandaríkjunum er gengið mun lengra varðandi verðstýringu á leigumarkaði. Það kemur mér því á óvart sú harða orðræða sem hefur verið í kringum leigubremsuna, sérstaklega í ljósi þess að það var samið um hana 2024 og hún hefur verið leiðarstefið í tveimur stórum húsnæðisaðgerðarhópum sem hafa verið leiddir af síðustu ríkisstjórn. Annar var 2019, minnir mig. Þar var sérstakur vinnuhópur varðandi þetta málefni. Þessar hugmyndir, nákvæmlega þessi útfærsla, voru lagðar til sem hluti af því þó að þær hafi ekki náð í gegn þá. Þremur árum seinna var annar starfshópur leiddur af síðustu ríkisstjórn sem komst að sambærilegum niðurstöðum. Þannig að þessi mikla andstaða stjórnarandstöðunnar við málið kemur á óvart. Ég get þó alveg deilt mörgum (Forseti hringir.) af þeim áhyggjum sem hv. þingmaður kom fram með. Það gefst ekki tími til að fara yfir þær akkúrat hérna en ég þakka annars þingmanni fyrir málefnaleg skoðanaskipti.