158. löggjafarþing — 14. fundur,  7. okt. 2026.

húsaleigulög.

157. mál
[16:22]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra kærlega fyrir síðara andsvarið þótt ég hafi ekki beint greint spurningu í því. Gott og vel. Já, ég kannast við að þetta hafi verið rætt og að menn hafi velt þessari leigubremsu fyrir sér í töluverðan tíma. Það er líka alveg rétt, eins og hæstv. ráðherra bendir á sjálfur, að þetta fór ekki í gegn og það er ástæða fyrir því að þetta fór ekki í gegn. Menn voru ekki sammála um þetta, nákvæmlega hvernig ætti að útfæra þetta, m.a. þessa leið sem hæstv. ráðherra er að leggja til núna. Ég geri mér grein fyrir því að það eru bara skiptar skoðanir á því hvort menn telji þessa leið góða og gilda eða ekki. Eins og í öllum málum hér bera menn ábyrgð á sínum málum og sínum ákvörðunartökum. Ef þetta er sú leið sem ríkisstjórnin vill fara og hæstv. ráðherra vill fara þá bara fer hann hana. Ég er hins vegar ekki sammála henni og það eru fleiri sem eru á svipuðum slóðum og ég, t.d. seðlabankastjóri, eins og við bentum á og miklu fleiri sem hafa varað við þessari leið. Það er kannski ein af skýringunum á því að við settum þessa leigubremsu ekki á þegar við vorum hér í síðustu ríkisstjórn.

Ég þakka hæstv. ráðherra enn og aftur fyrir sín andsvör. Það er bara afskaplega ánægjulegt að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hafi tekið þá ákvörðun að beygja af leið og koma hér inn í samninga. Það var nú bara hér í þessari pontu ekki fyrir svo löngu síðan að sá sem hér stendur spurði hæstv. forsætisráðherra hvað (Forseti hringir.) ríkisstjórnin ætlaði að gera varðandi kjarasamningana. Svarið var einfalt: Það er ekki hlutverk ríkisstjórnarinnar að skipta sér af kjarasamningum á almennum markaði.