158. löggjafarþing — 14. fundur,  7. okt. 2026.

húsaleigulög.

157. mál
[16:24]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S):

Herra forseti. Þótt þessi umræða hafi farið af stað hér á mánudaginn þá vil ég samt sýna almenna kurteisi og þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu sína í þessu máli og fyrir hans veru hér í þingsal og þátttöku í umræðum sem er til háborinnar fyrirmyndar. Hvað mig varðar er alveg sama hvort ég sé hér 17. ræðumaður eða 177. ræðumaður þá myndi ég aldrei fara í gegnum þessa ræðu án þess að vitna til orða seðlabankastjóra, Ásgeirs Jónssonar, í morgun, með leyfi forseta:

„Hvað varðar leigubremsu þá er þetta eitthvað sem er kennt í öllum grunnkúrsum í hagfræði og allir hagfræðingar ættu að vita að það er engin lausn að setja verðþak á leigu. Það leiðir til lengri tíma til þess að framboð á leiguhúsnæði minnkar og alls konar aðrir hlutir gerast. […] Þetta eru algjörlega röng viðbrögð sem koma leigjendum verst. Ég er ekki viss um að það hafi endilega svo mikil áhrif á verðbólgumarkmið eða verðbólguna til skemmri tíma litið. Þannig að leigubremsan er“ — ég legg áherslu á þetta — „augljóslega mjög heimskuleg en ég held hún hafi engin sérstök áhrif til skemmri tíma.“

Þetta voru orð seðlabankastjóra í morgun, ekki bara einhvers manns úti í bæ, sem hefur stórfelldar áhyggjur af þessu. Svo er maður hugsi yfir viðbrögðunum við þessu. Enn eina ferðina koma varnaðarorð frá fólki sem hefur mikla þekkingu á málunum, eins og hefur verið rætt um hér fyrr í dag, m.a. í fundarstjórn, um fjármálaráð og hvernig það fór yfir fjárlagafrumvarpið. Hæstv. ríkisstjórn virðist alveg fyrirmunað að taka nokkrum leiðbeiningum. Það er hennar val, að sjálfsögðu. Það er ríkisstjórnin sem leggur fram lögin í landinu og reynir að fá þau samþykkt hér í þessum sal. En þessi viðbrögð eru svo skrýtin, sér í lagi kannski frá Flokki fólksins ef við byrjum þar. Ég ætla að nýta tíma minn í að fara í gegnum þessa þrjá ríkisstjórnarflokka. Nú bara rétt fyrir korteri síðan, eftir stórbrotna frammistöðu hér að vanda, er hv. þm. Sigurjón Þórðarson búinn að rita ansi tempraðan pistil, segir maður í mikilli kaldhæðni, á Vísi um orð seðlabankastjóra og bara um seðlabankastjóra í heildina þar sem hann segir m.a. að Ásgeir Jónsson sé genginn í grátkór. Manni finnst það ekkert sérstaklega smekkleg ummæli.

Maður spyr sig líka hvaðan þessi ummæli koma frá seðlabankastjóra í morgun. Getur verið að hann eins og hv. stjórnarandstöðuþingmenn, sem eru hér nánast alla daga að reyna að malda í móinn eins og er okkar starf, í aðhaldi okkar við hæstv. ríkisstjórn, sé hreinlega orðinn þreyttur á öllum málunum sem eru að koma hér og fljóta í gegnum þingið í boði Flokks fólksins þar sem peningum er bara sturtað og sturtað úr ríkissjóði á meðan t.d. hv. þingmenn Viðreisnar, sem auðvitað gengu í sinn flokk og fóru í kosningar til að gera eitthvað allt annað, láta að sjálfsögðu ekki sjá sig. Það er merkilegt að Ásgeir Jónsson er hagfræðingur, doktor í hagfræði, og nú vill svo skemmtilega til að það eru tveir aðrir hagfræðingar sem mikið er rætt um hér, hæstv. forsætisráðherra og hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra og ekki hafa þeir komið þessu frumvarpi til varnar í dag þrátt fyrir þessi stóru orð seðlabankastjóra.

Maður er enn og aftur hugsi yfir því að mál, sér í lagi frá Flokki fólksins, fari ekki í samráðsgátt. Við erum að nálgast seinni hálfleikinn, það er kannski komið í seinni hálfleik, mögulega uppbótartíma, hjá núverandi ríkisstjórn og þetta gerist aftur og aftur. Það er kallað hér í þingsal og í fjölmiðlum og ég veit ekki hvar og hvar, á báða bóga, að það eigi að reyna að sýna virðingu fyrir þinginu og það á að reyna að bæta þingsköpin og hæstv. forseti þurfti líka á sínum tíma svona aðeins að bakka með sín orð, en samt erum við að sjá þetta aftur og aftur. Þetta er náttúrlega bara ekki í lagi, hvað þá með svona mál sem hefur svona víðtæk áhrif. Ég tek undir með hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni, þingflokksformanni Framsóknar, heils hugar, ég velkist ekki í vafa um að þetta sé gert í góðum tilgangi enda hefur Flokkur fólksins gefið sig út fyrir það og hefur alla tíð staðið fyrir því og hefur alltaf verið mjög einbeittur og mjög rökfastur í þeirri stefnu sinni að hjálpa þeim sem minna mega sín þrátt fyrir að stjórnarandstaðan sé ekki alltaf sammála aðferðunum og það sé hægt að deila um aðferðafræðina. En maður spyr aftur: Af hverju fer þetta ekki í samráðsgátt? Svarið er nokkuð einfalt. Það kemur fram í greinargerðinni að ástæðan sé einföld. Í fyrsta sinn kannski fengum við svar annað en bara einhver ummæli frá einhverjum þingmönnum. Svarið er að það hefði getað hvatt til verðhækkana fram að gildistöku breytinganna, sem er auðvitað bara frekar fyndið í ljósi þess að það má vel halda því fram að frumvarpið sjálft kalli náttúrlega líka á verðhækkanir þegar kemur að húsaleigu. Það er náttúrlega það sem stjórnarandstaðan hefur verið að reyna að benda á, að þetta frumvarp sé ekkert endilega til þess gert að ná markmiðum sínum þó að það sé vafalítið sett fram í góðum tilgangi.

Rétt aðeins um Flokk fólksins. Ég hélt að við værum einhvern veginn að reyna að halda uppi að einhverju leyti heiðvirðri umræðu en hér er þetta endalaust kvabb eins og við heyrðum í dag um að stjórnarandstaðan — og það kom meira að segja frá hæstv. ráðherra sem voru vonbrigði, ég bjóst meira við þessu frá hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni — sé á móti öllu. Hún er það náttúrlega í grunninn, um það snýst húsið, en ókei, það er alltaf sagt að Sjálfstæðisflokkurinn sé svo vondur og hann vilji bara aldrei gera neitt fyrir neinn þrátt fyrir, ef fólk skoðar bara í grunninn allt sem síðasta ríkisstjórn gerði fyrir aldraða og öryrkja — það er kannski yndislestur sem fólk ætti að fara í seinna meir. En það sem Sjálfstæðisflokkurinn sér í lagi og stjórnarandstaðan er almennt að gera, sérstaklega með þessi mál, er að reyna að benda á að vinna málin vel og vinna þau aftur, svo ég bakki í það sem ég var að tala um, og setja þau í samráðsgátt til að við höfum eitthvað til að tala um þegar málin koma inn á þingið. Ég átta mig fyllilega á því að þetta mál fer til hv. velferðarnefndar þar sem unnið verður að því og mögulega verða gerðar einhverjar breytingar á því.

Það er eitt sem hefur stungið í stúf í þessari umræðu og það hefur komið fram áður frá öðrum hv. þingmönnum, þ.e. fjarvera Viðreisnar í þessari umræðu. Það er alls ekki í fyrsta sinn sem hv. þingmenn Viðreisnar eru ekki í salnum einu sinni, þó að ég ætli að taka fram eins og maður myndi segja í boltanum að þetta er svona einnar kameru „show“, fyrirgefið, herra forseti. Hv. þm. Grímur Grímsson situr í salnum svo það sé sagt, en það hefur enn þá enginn hv. þingmaður Viðreisnar tekið þátt í þessari umræðu, ekki einu sinni hv. þm. Sandra Sigurðardóttir sem er fulltrúi Viðreisnar í velferðarnefnd. Af hverju ætli það sé? Ef við lítum bara til síðasta landsþings Viðreisnar þá var þar verið að fara yfir efnahagsstefnuna og þau voru að leggja ríkari áherslu á það sem þau vilja gera, flokkur sem hefur kennt sig við frjálslyndi og lága skatta, vill vera markaðsþenkjandi en þó mikið fyrir neytendarétt. Landsþingsstefna þeirra byrjar á því að segja, með leyfi forseta: „Markaðslausnir skulu ávallt nýttar þar sem þær nýtast best.“ Þetta er fyrsta setningin í stefnunni og má segja að hún sé svona mottóið hjá þeim. En leigubremsan sem við erum að ræða hér er í raun og veru hið gagnstæða. Í stað þess að nýta markaðslausnir til að auka framboð og örva uppbyggingu og þvíumlíkt, þá grípur hún inn í það hvernig einkaaðilar mega semja sín á milli. Í stefnunni er líka talað um að lög og reglur eigi fyrst og fremst að þjóna almannahagsmunum og tryggja öryggi, frelsi, neytendarétt og velsæld. Þarna koma tvö orð sem ég held að megi alveg tengja við þetta, öryggi er orð sem ég held að við getum deilt um en neytendaréttur á náttúrlega að vera þarna. En frelsi er nefnt sérstaklega sem gildi sem lög eigi að vernda og tryggja. En leigubremsan gengur einfaldlega í gagnstæða átt og hún afnemur samningsfrelsi leigjenda og leigusala undir þeim formerkjum að þarna eigi að hjálpa neytendum. Ég var svo sem búinn að tína fleira þarna til en ef fólk fer aðeins yfir stefnuna — auðvitað er það erfitt þegar þingmenn sjá að það er bara gengið í raun og veru gegn þeirra eigin stefnu. Aftur: Við höfum verið að ræða um fjárlög og fleiri mál, ræða þessi mál frá Flokki fólksins og þá kemur enginn þingmaður í Viðreisn upp og vill ræða þau. Þá spyr maður sig: Hvernig fer þetta hreinlega í gegnum ríkisstjórnina?

Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra en rétt aðeins um efnahagsmálin, hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson kom inn á þau og orðaði þetta ágætlega, að þetta væri svona plástur á sárið að vissu leyti, sár sem ríkisstjórnin er búin að búa til sjálf. Við erum að horfa upp á það að það er allt bara á ögurstundu í kjaramálum. Nokkur félög eru búin að gera samninga en þetta er svona enn þá í bígerð. Ég ætla nú ekki að fara jafn djúpt í þetta og hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson en mér fannst áhugavert sem hann sagði um plástur á sárið. Staðan er ekki góð. Vextir og verðbólga eru í hæstu hæðum, hækka og hækka, atvinnuleysi eykst. En svo munum við væntanlega sjá þau berja sér á brjóst, sérstaklega Samfylkinguna, ef samningar nást að fullu leyti. Þetta er það sem er búið að gerast og þetta á að vera svona eitthvert frumvarp til að reyna að bera í bætifláka fyrir það sem er að gerast í efnahagsmálunum. En staðan er ekki góð. Hún er bara alls ekki góð og ég get ekki með nokkru móti séð að þetta frumvarp sé að fara að hjálpa einum né neinum í því. Ég ætla að taka undir með hv. þm. Bergþóri Ólasyni að ég held að við munum eiga ansi áhugavert samtal um þetta frumvarp eftir ekki marga mánuði, kannski eitt ár eða svo.