158. löggjafarþing — 14. fundur,  7. okt. 2026.

húsaleigulög.

157. mál
[16:36]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Nú erum við báðir tiltölulega nýir á þingi og áður en ég tók sæti á Alþingi var ég formaður stærsta stéttarfélags landsins. Við gerðum kjarasamning 2024 og stjórnvöld, þáverandi stjórnvöld, ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna, komu að því samkomulagi. Þetta voru fjölþættar aðgerðir sem sneru mjög mikið til að húsnæðismarkaðnum vegna þess markaðsbrests sem þá hafði hreiðrað um sig í rauninni stighækkandi frá bæði bankahruni og sem afleiðing þess m.a. að verkamannabústaðakerfið var lagt niður. Við reyndum þá á vettvangi verkalýðshreyfingarinnar að koma á alls kyns úrræðum í gegnum alls konar starfshópa sem leiddir voru af síðustu ríkisstjórnum, bæði 2019 og svo þremur árum seinna.

Ég spyr enn og aftur. Hluti af því samkomulagi sem ég las hér upp áður — og sérstaklega í ljósi þeirrar gagnrýni sem hefur verið frá stjórnarandstöðunni á þá aðferðafræði sem snýr að því að verja þá kjarasamninga sem eru núna til endurskoðunar en gerðir voru 2024 — hluti af því samkomulagi var að koma með aðgerðir til þess að tryggja stöðugleika og fyrirsjáanleika fólks á leigumarkaði. Þetta er m.a. sú aðgerð sem var rædd í tveimur mjög umfangsmiklum starfshópum, leiddum af síðustu ríkisstjórn, að fara sambærilega leið og er farin á Norðurlöndunum, þ.e. svona eina vægustu, myndi ég segja, útfærslu af fyrirsjáanleika (Forseti hringir.) og takmörkunum, ekki banni heldur takmörkunum á því hvað hækka má leigu eftir að samningar eru gerðir sem eru frjálsir.