158. löggjafarþing — 14. fundur,  7. okt. 2026.

húsaleigulög.

157. mál
[16:38]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Herra forseti. Það er náttúrlega mjög áhugavert að þessi aðgerð komi núna inn í ljósi þess að verkalýðshreyfingin og Samtök atvinnulífsins eru stödd í þessum veigamiklu og hrikalega mikilvægu samningaaðgerðum akkúrat á þessum tímapunkti. Og að þetta sé hluti af því sem eigi að keyra þá samninga yfir línuna er góðra gjalda vert, ég tala nú ekki um fyrir verkalýðshreyfinguna sem tók þessu opnum örmum og við höfum séð t.d. bara Sólveigu Önnu Jónsdóttur vera mjög ánægða með þetta. Að sjálfsögðu er þetta dúsa fyrir verkalýðshreyfinguna ofan í það sem hún er að reyna að gera. Þar er bara fólk sem er með þúsundir og tugþúsundir manna á bak við sig sem það er að reyna að verja hagsmuni fyrir og hefur bara gert það um margt mjög vel. Ég held að það séu flestir sammála um það. Þannig að ég skil alveg að þetta sé að koma þarna inn þó að ég sé ekki endilega sammála aðferðafræðinni á bak við frumvarpið sjálft. En það breytir því ekki að setja þetta inn í þessa kjarasamninga og kannski ekki vitandi hversu lengi þeir eiga að duga — svo er önnur spurning kannski einmitt hvernig þetta á síðan að hljóma ofan í hallalausu fjárlögin sem við erum með. Miðað við það sem er að fara að gerast í þessum kjarasamningum er núllið náttúrlega ekkert að fara að standa.

Ég veit því ekki alveg hvert hæstv. ráðherra er að fara með því að tengja kjarasamningana og síðustu ríkisstjórn inn í þetta. En ég skil mætavel að þetta sé að fara hérna inn og verkalýðsforystan taki þessu að sjálfsögðu vel, en það var svo sem ekki kannski inntakið í minni ræðu.