158. löggjafarþing — 14. fundur,  7. okt. 2026.

húsaleigulög.

157. mál
[16:40]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það sem ég var einfaldlega að benda á er að þeir kjarasamningar sem nú eru til endurskoðunar eru ekki nýir kjarasamningar heldur eru endurskoðunarákvæði, forsendur eða markmið sem stóðust ekki. Eitt af þeim markmiðum snýr að leiguvernd, meiri fyrirsjáanleika fyrir fólk á leigumarkaði, og var hluti af samkomulagi sem stjórnvöld árið 2024 komu að og þeir flokkar sem þar voru. Eins og ég kom inn á í andsvari mínu hér áðan er það auðvitað bara önnur umræða hvort stjórnvöld eigi yfirhöfuð að vera hluti af þríhliða samkomulagi eða ekki, en þetta voru samningar sem voru gerðir á sínum tíma sem við erum að uppfylla.

Í síðari spurningu minni vildi ég einmitt fara kannski meira inn á það sem hv. þingmaður ræddi um, sem voru orð sérfræðinga og Seðlabankans sérstaklega. Það er auðvitað valkvætt þegar við vitnum í sérfræðinga almennt. Það eru auðvitað fjölmargir hagfræðingar og sérfræðingar sem hafa talað fyrir eðlilegum takmörkunum á — ég vil ekki nota orðið verðstýringu — eðlilegum takmörkunum á því hvað hækka má leigu. Þess vegna er fyrirmyndin í þessu frumvarpi helst til á Norðurlöndunum. Ef við tökum t.d. bara Norðurlöndin, þá má ekki hækka leigu umfram ákveðin vikmörk, og t.d. í þessu frumvarpi er það mjög almennt, bara verðlag, nema hafa fyrir því góð og gild rök. Í frumvarpinu er í breytingum á 37. gr. fjallað um það hvað og hvernig (Forseti hringir.) má hækka leigu umfram almennt verðlag, verði t.d. mikill viðhaldskostnaður eða miklar endurbætur á húsnæði, og þetta er alveg í samræmi við það sem gerist á Norðurlöndunum. Þess vegna skil ég ekki þetta orðalag, (Forseti hringir.) sérstaklega orð seðlabankastjóra, þar sem þetta tíðkast í flestöllum löndum, ef ekki öllum löndum sem við berum okkur saman við, og meira að segja eru (Forseti hringir.) kvaðir mun meiri en þessar.