ákvarðanir nr. 283/2026 um breytingu á XX. viðauka við EES-samninginn o.fl.
Virðulegi forseti. Það er ákveðin fegurð í því að hafa þennan ófyrirsjáanleika í þinginu og fyrir vikið er gott líka að vera tilbúin með framsögu í þessu annars áhugaverða og mikilvæga máli sem undirstrikar þýðingu þess fyrir okkur Íslendinga að halda áfram að standa með EES-samningnum.
En, virðulegi forseti, ég mæli hér fyrir þingsályktunartillögu um staðfestingu tveggja ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar og ætla í stuttu máli að gera grein fyrir helstu efnisatriðum þeirra.
Í fyrsta lagi er það ákvörðun nr. 283/2026. Með henni er felld inn í EES-samninginn annars vegar reglugerð Evrópusambandsins um að koma á fót aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis, þetta er kallað CBAM-reglugerð, og hins vegar breytingarreglugerð á henni sem bæði einfaldar og styrkir aðlögunarkerfið.
Í öðru lagi er það ákvörðun nr. 287/2026 en hún er nátengd upptöku CBAM-reglugerðarinnar í EES-samninginn að því leyti að í henni felast útfærslur á tæknilegum atriðum og fjárframlögum EFTA-ríkjanna innan EES vegna þátttöku þeirra í CBAM-kerfinu. Markmið CBAM-kerfisins er að jafna samkeppnisstöðu iðnaðar innan EES gagnvart iðnaði sem er staðsettur í ríkjum utan EES og koma í veg fyrir kolefnisleka. Kolefnisleki á sér stað, eins og við vitum, þegar losunarfrek starfsemi færist frá ríkjum sem búa að metnaðarfullu loftslagsregluverki, líkt og er innan EES, til annarra ríkja þar sem lögbundinn kostnaður vegna losunar gróðurhúsalofttegunda er minni. Oft er það Asía, of er það Suður-Ameríka, sem er með misgóð regluverk í þessu þegar kemur að losun gróðurhúsalofttegunda.
Kerfið á því að verja iðnað innan EES með því að leggja kolefnisverð á tilteknar vörur sem fluttar eru inn frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins. Þetta er það sem kerfið á að verja, þ.e. að passa upp á að sá iðnaður sem er innan EES-svæðisins sé varinn í rauninni frá þeim sem hafa minna regluverk utan EES-svæðisins og það skekkir auðvitað að einhverju leyti samkeppnisstöðuna um leið. Kerfið tengist á endanum ETS-kerfinu að því leyti að kolefnisverð varanna endurspeglar verð ETS-losunarheimilda.
Þátttaka Íslands og Noregs í kerfinu er mikilvæg til að tryggja jöfn samkeppnisskilyrði á innri markaðnum. Það var þannig áherslumál að tryggja að ríkin væru ekki meðhöndluð sem þriðju ríki í kerfinu. Það var þung áhersla á þetta, búið að vera lengi nokkuð mikil hagsmunagæsla í þessu, að við yrðum ekki meðhöndluð sem þriðju ríki í þessu kerfi. Slíkt hefði auðvitað getað haft neikvæð áhrif á íslenskan iðnað sem nú tekur þegar þátt í ETS-kerfinu, m.a. með stuðningi atvinnulífsins hér heima.
Virðulegur forseti. EES-EFTA ríkin eru ekki tengd við tollakerfi ESB heldur hefur hvert og eitt þeirra sína eigin tollalöggjöf og tollakerfi, enda heyrir sameiginleg tollalöggjöf ekki undir gildissvið EES-samningsins. CBAM-kerfið kallaði því á flókna og frekar umfangsmikla vinnu, hagsmunagæslu eins og ég myndi allt eins vilja kalla það, við að aðlaga kerfið að EES-samningnum. Í ljósi þess voru gerðar nauðsynlegar lagatæknilegar aðlaganir þannig að kerfið myndi samræmast undirstöðum EES-samningsins. Allir aðilar unnu að mínu mati af mikilli kostgæfni til þess að ná akkúrat þeim markmiðum.
Upptaka CBAM-regluverksins sýnir því bæði virkni EES-samningsins í framkvæmd og hversu dýnamískur hann getur verið þegar hagsmunagæslu er beitt strax í upphafi. Þetta er eitthvað sem við þurfum að halda áfram að vinna að. Tveggja stoða lausnir á flóknum gerðum Evrópusambandsins eru vel tækar í dag ef við leggjumst á eitt við að finna raunhæfar lausnir.
Innleiðing þessara gerða kallar jafnframt á setningu sérstakra laga um aðlögunarkerfi yfir landamæri vegna kolefnis. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra mun leggja fram frumvarp í þessu skyni síðar á þessum þingvetri.
Virðulegi forseti. Það var haft samráð við utanríkismálanefnd og líka umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Nefndirnar gerðu ekki athugasemdir við upptöku gerðanna í EES-samninginn. Ég vil geta þess að nánari upplýsingar, m.a. um áhrif innleiðingar gerðanna, má finna í greinargerðinni í tillöguskjalinu og ég legg því til að þegar þessari umræðu lýkur verði tillögunni vísað til hæstv. utanríkismálanefndar.