ákvarðanir nr. 283/2026 um breytingu á XX. viðauka við EES-samninginn o.fl.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir framsöguna í þessu áhugaverða máli. Það skiptir máli að þetta sé vel gert og að við hugum vel að öllum þeim kostum og göllum sem fylgja því að vera aðilar að CBAM. Hagsmunagæslan, eins og við þekkjum svo vel, er gríðarlega mikilvæg fyrir okkur og mikilvægt að við reynum að beita okkur á öllum stigum.
Varðandi það er ég með tvær spurningar sem ég velti fyrir mér og langar að heyra ofan í hæstv. ráðherra með: Annars vegar hvort það hafi komið til álita að gera þá kröfu að tryggt sé að fulltrúar stjórnvalda og atvinnulífs verði þátttakendur í undirnefndum og vinnuhópum sem koma að CBAM-regluverkinu og hins vegar hvort það hafi farið fram greining á tengslum CBAM við aðra löggjöf á Íslandi. Þar undir eru þá m.a. tollalög og lög um úrvinnslugjald. Ég held að það skipti máli að við reynum að nýta okkur allar þær undanþágur sem mögulega eru til og allar þær glufur sem verða til í þessu regluverki til að hámarka hagsmuni Íslands eins og nokkur kostur er. Hefur ráðherra upplýsingar um þetta?