158. löggjafarþing — 14. fundur,  7. okt. 2026.

ákvarðanir nr. 283/2026 um breytingu á XX. viðauka við EES-samninginn o.fl.

158. mál
[18:18]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil kannski byrja á að þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir svörin og tek undir það sem hún nefnir hér. Auðvitað skiptir gríðarlega miklu máli fyrir okkur að standa vel að því að halda utan um hagsmuni Íslands. Mig langar núna í mínu seinna andsvari að horfa til þeirra upphæða sem um er að ræða. Ég er hér með innlegg frá Samtökum verslunar og þjónustu þar sem þau hafa verið að áætla verðmæti innflutnings vöruflokka til Íslands sem falla undir CBAM og þau hafa verið í kringum 60 milljarða kr. Þar vega járn og stál þyngst með u.þ.b. 36 milljarða kr. innflutningsverðmæti. Ég velti því fyrir mér hvort ráðherra hafi einhverja hugmynd um hver hækkunin verði, t.d. ef við horfum á járn, stál og sement. Hefur farið fram einhver skoðun á því hver hækkunin verður við það? Við getum t.d. tekið dæmi um húsbyggingu á Íslandi. Hver verður munurinn á sementinu? Ég held að það sé líka mikilvægt að það verði passað mjög vel upp á varðandi vöru t.d. frá þriðja aðila, sem er ekki endilega frá landi þar sem fylgst er vel með CBAM eða þar sem CBAM er til staðar, að það verði ekki leki af slíkum vörum til þriðja aðila sem gæti haft verulega neikvæð áhrif á samkeppnishæfni m.a. íslenskra fyrirtækja.