158. löggjafarþing — 14. fundur,  7. okt. 2026.

ákvarðanir nr. 283/2026 um breytingu á XX. viðauka við EES-samninginn o.fl.

158. mál
[18:23]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir framsöguna. Eins og henni er væntanlega kunnugt um er þetta CBAM-kerfi að hluta viðbragð við samkeppnisvanda sem ETS-kerfið sjálft skapar. Upptaka CBAM-kerfisins kann að draga úr ákveðnu óhagræði fyrir íslenskan útflutningsiðnað miðað við það að standa utan kerfisins en leysir ekki úr grundvallarspurningunni um kostnað og samkeppnisáhrif ETS-kerfisins fyrir Ísland. Síðan sýnir náttúrlega forsaga ETS-kerfisins að þátttaka Íslands í þessu regluverki var ekki sjálfgefin afleiðing EES-samningsins heldur var kerfið sérstaklega fært undir EES-samstarfið.

Utanríkisráðherra fór hérna yfir m.a. greinargerðina við frumvarpið, eða tillögu til þingsályktunar, þar sem hún sagði m.a. að haft hefði verið samráð við utanríkismálanefnd og umhverfis- og samgöngunefnd, sem er rétt, um upptöku reglugerðanna í samræmi við reglur Alþingis. Það segir jafnframt í greinargerðinni að engar athugasemdir hafi verið gerðar og hún endurtók það hér í ræðustól. Ég velti því fyrir mér af hverju þetta birtist með þessum hætti í greinargerðinni vegna þess að sú sem hér stendur gerði einmitt athugasemd við þetta mál þegar það var afgreitt út úr umhverfis- og samgöngunefnd. Ég og fleiri þingmenn skrifuðum ekki undir nefndarálit meiri hlutans og ég skilaði minnihlutaáliti. Það er því rangt í greinargerðinni að ekki hafi verið gerðar athugasemdir. Þannig að ég spyr hæstv. utanríkisráðherra, og það getur vel verið að hún hafi ekki (Forseti hringir.) fengið tilskilin gögn eða upplýsingar, en ég bið hana um að svara því hvernig stendur á því (Forseti hringir.) að þetta birtist með þessum hætti í greinargerðinni þegar athugasemdir voru gerðar skriflega með minnihlutaáliti.