ákvarðanir nr. 283/2026 um breytingu á XX. viðauka við EES-samninginn o.fl.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir svörin. Mig langar að spyrja hana: Telur hæstv. utanríkisráðherra ekki rétt og réttara að tala þá um meiri hlutann í greinargerðinni, ekki alla nefndina: meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar? Ég á sæti í þessari nefnd og ég skrifaði ekki upp á þetta, bara þannig að það sé á tæru. Það væri mjög fínt að fá það fram hvort hún teldi ekki réttara að þarna stæði meiri hluti. Annað er beinlínis rangfærslur.
Mig langar að spyrja hæstv. utanríkisráðherra að auki hvort það liggi fyrir mat á áhrifum á framleiðslu, byggingarkostnað og verðbólgu, hvort það liggi eitthvað slíkt mat fyrir varðandi áhrifin af innleiðingunni á þessu.
Þriðja spurningin — mér skilst að það sé fyrirliggjandi mat stjórnvalda að greiðslur vegna CBAM nemi u.þ.b. 350 millj. kr. Hefur verið greint hverjir bera þennan kostnað endanlega og hvaða áhrif hann hefur á verðlag og samkeppni? Ef þetta hefur ekki verið greint, hvenær verður þetta þá greint? Það er mjög mikilvægt að þetta liggi fyrir þegar málið er skoðað í heild sinni.
Síðan er það fjórða spurningin. Það kemur fram í minnisblaði utanríkisráðuneytisins sem var meðfylgjandi þessu máli að viðbúið sé að gildissvið CBAM með tilliti til vöruflokka sem falla undir kerfið verði úthlutað (Forseti hringir.) í framtíðinni. Getur hæstv. utanríkisráðherra upplýst okkur um hvað þarna er undir?