samkomulag þingflokksformanna við þinglok.
Virðulegi forseti. Ég kem hér upp undir þessum lið aðallega til að lýsa því yfir að mér þykir afar miður að fólk upplifi að hér hafi samkomulag verið brotið. Það er alvarlegt að svo sé. Það er nóg að það sé upplifun fólks að samkomulag hafi verið brotið, það er miður, því traust milli þingflokksformanna skiptir miklu máli. Það er þó mikilvægt, í ljósi þeirra orða sem hér hafa fallið, að taka það skýrt fram að það samkomulag sem undirritað var síðastliðið vor sneri að breytingu á lögum, að fresta breytingu á lögum inn í heildarendurskoðun haustsins og að innviðaráðherra myndi boða fulltrúa frá meiri og minni hluta á sinn fund áður en frumvarpið kæmi fram. Það frumvarp hefur ekki komið fram og búið er að boða til samráðsfundarins. Þetta er það sem stendur í samkomulaginu. Samkomulagið sneri ekki að reglugerð. Þó að reglugerðin snúi að pottunum þá er það ekki breyting á lögum sem var það sem samið var um að fresta inn í haustið og ákveðið var að boða samráðsfund með meiri og minni hluta. Það hefur verið gert og mun verða gert. En ég ítreka að mér þykir miður að fólk upplifi að samkomulag hafi verið brotið. Það er alvarlegt í sjálfu sér.