samkomulag þingflokksformanna við þinglok.
Virðulegur forseti. Í ljósi orða hv. þm. Guðmundar Ara Sigurjónssonar vil ég bara taka eftirfarandi fram: Það er auðvitað dálítið sérstakt, hafandi gert þetta samkomulag og verið aðili að þessu samkomulagi — reyndar var hv. þingmaður ekki hluti af því heldur hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir fyrir hönd Samfylkingarinnar og væri auðvitað áhugavert að heyra í henni í þessari umræðu. Það sem þingmaðurinn er í raun að segja er að strax innan við 40 dögum eftir að við undirrituðum þetta samkomulag þá geti ráðherra ákveðið með reglugerðarsetningu, þrátt fyrir þetta samkomulag, að færa í reglugerð rækju- og skelbætur annars vegar og línuívilnun hins vegar niður í 1 tonn hvort. Væri hann þá samt sem áður að efna samkomulagið? Hvernig dettur mönnum í hug að bera þetta á borð hér í þessari pontu? Það er með ólíkindum. Það vissu allir sem voru á þessum fundi um hvað væri verið að semja. Það vissu allir þingflokksformenn nákvæmlega um hvað menn voru að semja. (Forseti hringir.) Ráðherrann er hins vegar kolrangstæður í málinu og það er ástæðan fyrir því að hér er tekið til varna. Ég hugsa með mér: Hefði ekki verið skynsamlegra að biðjast bara einfaldlega afsökunar á þessari dellu í ráðherra?