158. löggjafarþing — 15. fundur,  8. okt. 2026.

samkomulag þingflokksformanna við þinglok.

[13:47]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Það er nú rétt að ítreka það að samkomulagið sneri fyrst og fremst að fyrirhuguðu frumvarpi og lagabreytingu en ekki heimild ráðherra til að setja reglugerð. Ef maður les samkomulagið eins og það er skrifað stendur það upp úr og það er rétt að undirstrika það í umræðunni. Síðan er rétt að velta þessu efnislega fyrir sér: Hvers vegna leggur stjórnarandstaðan ofuráherslu á að ekki verði breytingar á úthlutunum á bótum sem urðu vegna áfalla fyrir aldarfjórðungi? Hvers vegna við viljum festa þennan litla byggðapott í því að halda áfram að styðja hér bætur vegna áfalla í veiðum á skel og rækju alveg fram í eilífðina.

Ég held að þetta sé spurning sem fólk ætti að spyrja sig: Hvað liggur þarna að baki (Gripið fram í.) hjá stjórnarandstöðunni, að vilja ekki breyta þessum þáttum og halda áfram með þessar bætur fram í eilífðina? Það er verið að uppfylla samkomulagið eins og það stendur. Ég ítreka (Forseti hringir.) að það hefði farið betur á því ef samráð hefði verið haft (Forseti hringir.) áður en reglugerðin var sett.