samkomulag þingflokksformanna við þinglok.
Virðulegi forseti. Ég kem hér aftur upp til að ítreka það að traust skiptir miklu máli hér á Alþingi og sérstaklega milli þingflokksformanna. Ég vil taka undir með þeim þingmönnum sem hafa lýst því að það er miður að samkomulög þurfi að vera undirrituð og að ekki sé hægt að treysta munnlegum samkomulögum. Því miður hefur reynt á það á kjörtímabilinu og það er ekki á ábyrgð stjórnarmeirihlutans að hafa svikið munnleg samkomulög. Þetta hefur áður komið fram hér í ræðustól Alþingis. En ef við ætlum að tala um staðreyndir, hæstv. forseti, eins og hv. þm. Jens Garðar Helgason kom inn á, þá eru staðreyndirnar einfaldlega tvær. Það var samið um að fresta því að breyta lögum síðastliðið vor og sú breyting var hluti af því frumvarpi sem átti annars fram að ganga en var vísað inn í heildarendurskoðun laga. Frumvarpið á að leggja fram og er það á þingmálaskrá núna í haust. Jafnframt var samið um að haldinn yrði samráðsfundur meiri og minni hluta áður en áður en það frumvarp yrði lagt fram. Frumvarpið er ekki komið fram. Búið er að boða samráðsfund. Þetta eru staðreyndir málsins.