158. löggjafarþing — 15. fundur,  8. okt. 2026.

frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum.

[14:09]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Hér var aftur varaformaður Sjálfstæðisflokksins, sem var hérna held ég bara fyrir tveimur dögum í þessari pontu, að býsnast yfir því að það væri búið að ná samningum á vinnumarkaði, fannst það bara alveg ómögulegt að ríkisstjórnin hefði verið að koma með aðgerðir sem hefðu einmitt liðkað fyrir á vinnumarkaði. Auðvitað verðum við að ná fram verðstöðugleika til lengri tíma og það þýðir að við þurfum að grípa til aðgerða í einum eða öðrum málum. Svo segir varaformaðurinn hér að þetta mál hafi komið fyrir sex mánuðum. Já, það er nákvæmlega rétt. Af hverju? Af því að þessi ríkisstjórn fór strax að huga að því hvernig hægt væri að byggja undir það að við næðum eðlilegum niðurstöðum á vinnumarkaði. Auðvitað fór þessi ríkisstjórn beint í það, var ekki að draga lappirnar fram á síðustu metra, eins og var gjarnan hjá fyrri ríkisstjórn.