búvörusamningar og rekstrarskilyrði landbúnaðar.
Forseti. Mér þykir leitt hvað hv. þingmaður er svartsýnn á lífið. Staðreyndin er sú að búvörusamningar voru framlengdir óbreyttir út árið 2027, þ.e. frumvarp þess efnis liggur nú við þingið og samkomulag við Bændasamtökin um það var undirritað í vor. Ég, samkvæmt því samkomulagi, lagði fram frumvarp sem nú er í þinglegri meðferð. (Gripið fram í.) Það sem hefur gerst síðan er m.a. að Alþjóðatollastofnunin hefur gert athugasemdir um það að við séum ekki að fylgja þeim samningum sem við höfum undirritað um samræmda tollskrá og það sem skiptir þá máli — ef hv. þingmaður er óánægður með svör mín varðandi þessa tollskrá þá mælist ég í allri vinsemd til þess að hann spyrji þann ráðherra sem fer með þann málaflokk. Nú er það svo … (Gripið fram í.) — Ég ætla að fá að klára hérna. Nú er það svo að við eigum samtal, bæði við Bændasamtökin og við ráðherrarnir eigum samtal okkar á milli og þegar fjármálaráðherra, sem er með þessi samskipti á sinni könnu, kemur og hefur áhyggjur af því að hér séu heildarhagsmunir okkar undir í alþjóðaviðskiptum, (Forseti hringir.) að við séum ekki að standa við þessa samræmdu tollskrá og ætlar að skoða það og setja í samráð að leiðrétta það, (Forseti hringir.) þá gerir hann það og hann hefur til þess stuðning að skoða það. Þetta er komið í samráð. (Forseti hringir.) Þetta er á dagskrá. Þetta felur í sér samtal. Þetta er í vinnslu og þetta er í samtali.
(Forseti (BHar): Forseti minnir aftur á tímamörkin.)